viðbrögð stjórnvalda við tímabundinni lokun PCC á Bakka.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og þykir miður ef ég er að fara að valda honum vonbrigðum vegna þess að ég er ekki að fara að taka fram fyrir hendur fjármálaráðherra í þessum ræðustól og halda því fram að ég sé búin að leysa þetta mál ef hann hefur ekki leyst það. Ég veit að þetta er til skoðunar og það er ekki sjálfsagt að stíga inn með þeim hætti að ákveða að fara í umtalsverðar breytingar á tollastarfsemi eða tollapólitík eða tollalögum út af einu fyrirtæki. Þetta er stórmál. Það eru aðilar hér innan lands sem flytja til að mynda súrál eða ákveðin íblöndunarefni eða önnur aðföng frá þessum umræddu svæðum. Það er heildarmynd sem þarf að huga að. Það er ekki bara eitt fyrirtæki sem þarf að hugsa um. Ég hef fullan skilning á áhyggjum fólks af þessari starfsemi. Ég hef fullan skilning á því að við séum á þeim stað í kjördæmi hv. þingmanns að það liggi svona mikið undir einu fyrirtæki og ég held að það hljóti að vekja okkur til umhugsunar um hvernig byggðapólitík og atvinnustarfsemi úti á landi í gegnum árin og áratugina hefur þróast, að það þurfi bara eitt fyrirtæki til til að valda þeim skaða sem getur skapast ef þessi störf hverfa. Um þetta er ríkisstjórnin fullkomlega meðvituð. En það væri óábyrgt af mér að stíga hér upp í ræðustól þegar ég hef ekki svör við þeirri spurningu hvað ég ætli að gera til að bjarga þessu fyrirtæki. Ég veit að það er verið að skoða mögulegar leiðir. Það er verið að leggjast yfir og kortleggja stöðuna sem snýr að þessu fyrirtæki, sem snýr að tollum, sem snýr að því ef Kínverjar eru að brjóta ákveðnar viðskiptareglur ef svo má segja. Ég verð að eftirláta þá skoðun fjármálaráðuneytinu eins og staðan er í dag en auðvitað hef ég áhyggjur af atvinnu þessa fólks og við þurfum að gera eitthvað í því til lengri tíma, óháð þessu fyrirtæki.