156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

viðbrögð stjórnvalda við tímabundinni lokun PCC á Bakka.

[15:28]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þegar hæstv. forsætisráðherra heiðrar nú þingið með nærveru sinni hefði ég talið að þingið ætti a.m.k. kröfu á því að heyra skoðun hæstv. ráðherra á þessu stóra máli, máli sem, eins og hæstv. ráðherra nánast óvart benti á, varðar ekki bara þetta fyrirtæki heldur ýmsa starfsemi aðra í nærumhverfinu vegna afleiddra áhrifa þess. Gríðarlega stórt mál sem kallar á viðbrögð ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnar sem er undir forystu hæstv. forsætisráðherra. Því ítreka ég spurninguna, óháð því hvaða excel-skjöl hæstv. fjármálaráðherra er að skoða: Hvað finnst hæstv. forsætisráðherra að eigi að gera í málinu? Ef hæstv. fjármálaráðherra kemst að þeirri niðurstöðu að það sé bara hægt að gera eitthvað, aldrei þessu vant, það sé hægt að bregðast við, sýna myndugheit í stjórn landsins, mun þá hæstv. forsætisráðherra styðja tillögur ráðherra síns? En það sem skiptir kannski meira máli: (Forseti hringir.) Mun hæstv. forsætisráðherra hvetja hæstv. fjármálaráðherra til að skila einhverri lausn í þessu máli?