vextir og verðbólga.
Virðulegur forseti. Samfylkingin ætlar að negla niður vextina, sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, skömmu fyrir kosningar. Það var alveg ljóst að henni var alvara og hún trúði því sem hún sagði. Svo mikil var alvaran að hún birtist á skjám landsmanna með risavaxna sleggju til að undirstrika það. Þetta var ekkert grín. Hún var með plan, hún var með sleggju til að negla niður vexti og verðbólgu. Kjósendur trúðu henni og treystu á að hún myndi bjarga þeim frá íþyngjandi vöxtum og verðbólgu. Þegar kosið var til Alþingis þá hafði verðbólgan reyndar lækkað úr 10,2% í febrúar 2023 niður í 4,8% og hafði lækkað samfleytt síðustu fjóra mánuði. Seðlabankinn hafði í kjölfarið hafið vaxtalækkunarferli. Almennt var því talið að hlutirnir hafi verið á réttri leið. Kristrún sagðist hins vegar geta gert betur en fráfarandi ríkisstjórn sem brást fólkinu í landinu með því að passa ekki upp á efnahagsmálin að hennar sögn. Það voru því bundnar miklar vonir við að þegar Kristrún mætti með planið og sleggjuna í Stjórnarráðið til að leysa af fráfarandi ríkisstjórn yrði allt miklu betra, að hún myndi tryggja hraðari lækkun vaxta og verðbólgu.
Fyrstu 100 daga ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hélt þessi þróun áfram. Vextir og verðbólga lækkuðu reyndar hægar en lækkuðu þó. Síðan hélt ríkisstjórnin upp á 100 daga afmælið sitt og frá og með þeim gleðskap má segja að blikur hafi verið á lofti. Í fyrsta skipti í níu mánuði hækkaði verðbólgan í apríl og nú hefur Seðlabankinn hægt verulega á vaxtalækkunarferli sínu. Raunar mátti skilja seðlabankastjóra svo að hann væri eftir hina smávægilegu vaxtalækkun búinn að ýta á pásutakkann þar til böndum væri komið á verðbólguna. Fyrir kosningar sagði formaður Samfylkingarinnar að lækkun vaxta og verðbólgu væri pólitísk ákvörðun. Hún trúði því augljóslega sjálf enda lofaði hún almenningi að negla þá niður þegar hún yrði forsætisráðherra. Það gagnstæða hefur hins vegar gerst frá því að hún tók við. Verðbólga hefur hækkað og vaxtalækkun komin á pásu. Það er því eðlilegt að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er þetta samkvæmt plani? Hvers vegna neglir ríkisstjórnin ekki (Forseti hringir.) niður vextina og verðbólguna? Hvar er sleggjan?
(Forseti (ÞSv): Forseti sér ástæðu til að minna hv. þingmenn á að nefna kollega sína ávallt með fullu nafni.)