156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

vextir og verðbólga.

[15:36]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Þetta var áhugavert svar. Það var sem sagt ekkert plan. Það á að vinna í málunum. Þetta er miklu flóknara. Þetta er sem sagt ekki eins auðveld pólitísk ákvörðun og hæstv. forsætisráðherra talaði fyrir kosningar. Hagvexti í fjárlögunum var spáð 2,5% á árinu 2025 ef ég man rétt. Hann var síðan kominn niður í 1,6% og nú er flaggað að verði 1%. Er það kannski vegna fjármálaáætlunar nýrrar ríkisstjórnar? Eða skyldi það vera vegna þess að ríkisstjórnin hefur sent út skilaboð um að minnka verðmætasköpun í lykilatvinnugreinum þjóðarinnar? Er möguleiki að fólkið í landinu og fyrirtækin séu farin að efast um að sleggjan sé til, að það sé plan og að væntingar til verðbólgu séu að dvína, að hún geti lækkað? Er ríkisstjórninni að mistakast? Það þýðir ekki að þvæla hér eitthvað um búvörulög í því samhengi. (Forseti hringir.) Það er nú efni í alveg sérstaka umræðu hér við hæstv. forsætisráðherra og fleiri ráðherra.