156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

vextir og verðbólga.

[15:37]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég held raunar að þessi ríkisstjórn sé að gera ýmislegt sem lengi hefur verið beðið með þegar kemur að því að ýta undir verðmætasköpun. Fiskurinn verður ekki fluttur á milli landshluta ef vegirnir eru í ólagi, ef við erum með of mikið af einbreiðum brúm, ef það er ekki hægt að bora ein einustu ný göng í sjö ár. Allt eru þetta til að mynda þættir sem við höfum lagt höfuðáherslu á. Við höfum t.d. sett það í samhengi við ákveðnar breytingar þegar kemur að mikilvægri atvinnugrein sem okkur þykir öllum vænt um og vitum að getur skilað vel til þjóðarbúsins, að hækkun veiðigjalda og ígildi þess gæti m.a. farið í að styrkja verðmætasköpun, styrkja hinar dreifðu byggðir í þessu samhengi.

Mig langar líka að nefna í því samhengi að ég myndi segja að salan á Íslandsbanka og áhugi almennings á að kaupa í Íslandsbanka sé til marks um ákveðna bjartsýni í íslensku samfélagi, traust og trú á efnahagslífinu, á fjármálamörkuðum. Það er gagnapunktur sem mér finnst ánægjulegt að fylgjast með.