156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

hækkun veiðigjalds.

[15:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er ekki ofsagt að ríkisstjórninni hefur tekist að skapa mikið uppnám í undirstöðuatvinnugrein okkar. Það fylgir þessu mikil upplýsingaóreiða þar sem grunnforsendur sem komu fram þurfa að gæta að stöðugum breytingum. Má segja að hæstv. forsætisráðherra hafi toppað þetta í Sprengisandi á sunnudaginn þegar hún sagði þjóðinni að það væru ekki nema 20% af sjávarútvegsfyrirtækjum sem myndu greiða hærra veiðigjald. Þetta segir mikla sögu. Það eru miklar áhyggjur hjá sveitarfélögunum, alveg sérstaklega auðvitað útgerðum í fjölbreyttu útgerðarmynstri, af öllum stærðum. Það er núna það nýjasta að búið er að rjúfa sáttina sem hefur verið um ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og það hefur ekki verið gert með þessum hætti í svona stofnun í 25 ár. Fyrirtæki eru nú farin að spegla skattahækkanirnar í sínum ársreikningum og við í atvinnuveganefnd höfum m.a. fengið yfirlit yfir það. Afleiðingarnar eru miklu harðari heldur en lagt hefur verið upp með í allri umræðu um þetta mál af hálfu ríkisstjórnarflokkanna. Það eru sláandi niðurstöður og áhrifa er farið að gæta. Þetta er alveg ótrúleg upplýsingaóreiða sem á sér stað þegar staðreyndir eru síðan lagðar á borð fyrir okkur með þeim hætti sem fyrir liggur.

Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra í ljósi þess hvert við erum komin í þessu máli, sem er að mínu mati langleiðina út í skurð, hvort ráðherrann sé ekki tilbúin til þess að slá á áhyggjur fólks, eiga frumkvæði að því að lengri tími verði gefinn til undirbúnings þessara breytinga, hækkunar á veiðigjöldum til næstu ára, það sé hægt að snúa þessu þannig að það sé eitthvert mark tekið á forsætisráðherra þegar hún segir fólki að hún hafi ætlað að innleiða þetta á tíu árum. Alvarleiki óvissunnar, upplýsingaóreiðunnar, kallar á það, virðulegur forseti, að það verði brugðist við (Forseti hringir.) og hér er spurningin til ráðherra hvort hún sé ekki tilbúin að eiga frumkvæðið að því skrefi.