hækkun veiðigjalds.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina. Mig langar til að byrja á því að segja að það er sennilega ekki til skýrara dæmi um upplýsingaóreiðu í þessum málum en þegar hv. þingmaður heldur því fram að hér sé verið að rjúfa 25 ára gamla sátt í sjávarútvegsmálum með strandveiðifrumvarpi því sem bíður nú 1. umræðu. Það, hv. þingmaður, er einfaldlega rangt og það sýna dæmin og ég hefði gjarnan viljað fá fyrirspurn um það mál, það er kannski ekki öll nótt úti enn til þess að geta svarað því, ef ekki þá koma þau svör á morgun.
Varðandi aðra upplýsingaóreiðu sem hv. þingmaður talar um þá er eiginlega til annarra að leita svara varðandi það en ráðherrans sem hér stendur. Ráðuneytið hefur lagt gögn á borðið, gögn sem unnin eru upp úr upplýsingum frá Fiskistofu, þau sömu gögn og liggja til grundvallar álagningu veiðigjalda undanfarinn áratug. Þessi gögn hafa verið uppreiknuð með aðferð sem ég hygg að þingheimur þekki og fleiri til. Það er einfaldlega engin upplýsingaóreiða af hálfu ráðuneytisins í gangi. Hitt er annað mál að það hafa verið lagðar fram skýrslur af hagsmunaaðilum sem eru að sinna vissulega því hlutverki að koma í veg fyrir hækkun og ég ætla ekki að gera neina athugasemd við þá vegferð þeirra. En ég geri athugasemdir við að það séu lagðar fram skýrslur sem eiga að sýna fram á að vinna ráðuneytisins sé röng, skýrslur sem byggja á öðrum gagnagrunni en þeim sem liggur til grundvallar álagningu veiðigjalda síðastliðinn áratug. Í því liggur hin eiginlega upplýsingaóreiða, hv. þingmaður. Ég hygg að það sé einnar messu virði fyrir þá sem ætla að leggja alla sína pólitísku inneign í að stoppa þessa leiðréttingu, ef ég les salinn rétt og minni hlutann hér rétt, og fara raunverulega ofan í saumana á því hvar upplýsingaóreiðan liggur og hvar uppsprettan er.