156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

hækkun veiðigjalds.

[15:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég verð nú kannski að segja að mér þykir áhugavert í ljósi þeirrar umræðu, bæði hér í þingsal og utan þingsalar, um þau mál sem eru á borði atvinnuvegaráðherra og hefur verið mælt fyrir hér og eru í vinnslu, að spurningin sem hv. þingmaður beinir til ráðherra snýst um mál sem er alls ekki á forræði ráðherra heldur meiri hluta atvinnuveganefndar, ef ég skil rétt. Ég var að fá þær fregnir hér að það sé búið að mæla fyrir málinu og ég ætla bara að leyfa mér að íhuga það og skoða. Ég þekki raunverulega ekki, hef ekki séð nefndarálitið og hef ekki séð þetta mál þannig að ég verð bara að fá að geyma svör mín við þessu máli en lofa að það mun koma í ljós þegar málið kemst til afgreiðslu. Það er einfaldlega rétta svarið, hv. þingmaður. Ég hef ekki skoðað þetta mál. Þetta er ekki á borði atvinnuvegaráðherra. Þetta er mál meiri hluta atvinnuveganefndar og þar með einfalt þingmannamál og hlýtur þá afgreiðslu hér í þinginu. (Gripið fram í.)