frumvarp um veiðigjald.
Frú forseti. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Jón Gunnarsson. Ég beini spurningum mínum til verkstjóra ríkisstjórnarinnar, hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur. Um þessar mundir erum við í atvinnuveganefnd að vinna í 351. máli, veiðigjaldi. Innsend erindi eru orðin 57 og mér telst til að þarna séu rétt um 400 blaðsíður af efni sem við nefndarmenn erum að fara í gegnum, erum að fá gesti og rýna málið. Strax í upphafi, þegar mælt var fyrir málinu, var kallað eftir gögnum og frekari greiningum á því að taka þessi skref sem um er rætt. Ég vil minna á það hér, frú forseti, að við í Framsóknarflokknum höfum hingað til ekki verið fráhverf því að fjalla um veiðigjaldið eða hvort það ætti að hækka það. Aftur á móti er það þannig að þegar þessi skref eru tekin er mjög mikilvægt að öll gögn og greiningar liggi fyrir. Í ágætu útvarpsviðtali var hæstv. forsætisráðherra fyrir svörum í hinum góða útvarpsþætti Sprengisandi. Þar kom fram í hennar máli að það væru fyrst og fremst þessar stóru útgerðir sem bæru mestar byrðar af þessu. En í þeim gögnum sem atvinnuveganefnd fékk nú fyrir helgina þá kemur í ljós að einhverjar brotalamir eru á ferðinni hvað það varðar, því svo virðist vera sem frítekjumarkið sem átti að passa upp á smærri útgerðirnar geri það ekki betur en svo að veiðigjaldið hækkar um liðlega 80% á smærri útgerðir. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Eigum við ekki aðeins að staldra við og vinna málið aðeins betur?