156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

frumvarp um veiðigjald.

[15:50]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir sitt góða svar. Ég velti því fyrir mér í framhaldinu að nú hefur verið lagt upp með að hér sé um ákveðna leiðréttingu að ræða. Og talandi um ábendingar og umsagnir sem koma til okkar er það náttúrlega hlutverk nefnda Alþingis hverju sinni að gaumgæfa málin sem koma frá framkvæmdarvaldinu og taka þau og sníða af þeim þá vankanta sem á þeim eru. Það hafa komið verulegar athugasemdir í umsögnum sem snúa að því hvort um leiðréttingu sé að ræða. Erum við að miða við rétt? Erum við að taka rétt skref að miða við markaði erlendis o.s.frv. eins og varðandi norskan makríl? Ég tel á svari hæstv. forsætisráðherra að það sé mikilvægt fyrir okkur í atvinnuveganefnd, og nú horfi ég til verkstjóra þessarar ríkisstjórnar, að við vöndum okkur og förum gaumgæfilega yfir allar athugasemdir, ekki bara fáar og útvaldar (Forseti hringir.) heldur förum gaumgæfilega yfir þær allar og gerum þetta vel og gerum þetta rétt.