156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

frumvarp um veiðigjald.

[15:51]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég vænti þess að tíminn sé vel nýttur til að fara gaumgæfilega yfir þessa þætti. Ég vek hins vegar athygli á því að veiðigjaldið er í lok dags reiknuð stærð. Það er margt inni í veiðigjaldinu sem er metin stærð. Það er verið að gefa sér ákveðnar forsendur. Ég kasta nú bara einni hérna fram. Til dæmis eru vaxtagjöld sem eru frádráttarbær frá stofni veiðigjalds ígildi afskriftarprósentu sem er kannski í kringum 10–12%, sem ég efast um að stærstu útgerðarfyrirtækin borgi í vaxtakostnað. Það mætti líka alveg velta fyrir sér þeirri prósentu. Það var einhverju breytt á síðasta eða þarsíðasta kjörtímabili af síðustu ríkisstjórn sem merkilega dró niður stofninn og lækkaði veiðigjaldið. Það hefði kannski þurft að fá smá gaumgæfilega skoðun. Auðvitað þarf að skoða þetta allt saman en í lok dags er verið að leitast við að finna einhvern mælikvarða sem kemur þér nærri einhverjum sannleika. En í lok dags er þetta reiknuð stærð. Það verður alltaf eitthvert mat á þessu en ég vænti þess að vinnan sé bara góð í nefndinni og að þið rennið yfir þetta saman.