156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

atkvæðagreiðsla um skýrslubeiðni.

[16:00]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú ekki að tefja hér þingstörf sem hafa gengið mjög greiðlega á þessum þingfundi. Þess vegna kem ég hér upp í fundarstjórn, mér finnst þau eiginlega ganga of greiðlega. [Hlátur í þingsal.] Ég var hér rétt fyrir framan þingsalinn þegar var hringt til atkvæðagreiðslu en samt tókst mér ekki að greiða atkvæði um þá skýrslu sem ég stend að, um póstþjónustu, og gera grein fyrir þeirri skýrslu af því að atkvæðagreiðslu var lokið rétt eftir að bjallan hætti að hringja. Þetta var það eina og ég fullnýtti ekki tímann.

(Forseti (ÞSv): Forseti mun láta skrá stuðning þingmannsins við skýrslubeiðnina og biðst afsökunar á því að hafa verið heldur fljót í þessari atkvæðagreiðslu.)