skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Í því er lagt til að lífeyrissjóðum verði óheimilt að láta greiðslur almannatrygginga vegna örorku leiða til lækkunar á lífeyri sjóðfélaga.
Forsaga þessa máls er nokkuð löng en samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er skilyrði örorkulífeyris að sjóðfélagi hafi orðið fyrir tekjuskerðingu sem rekja má til örorkunnar. Hvað telst til tekna í þessu sambandi er ekki útfært í lögunum.
Forseti. Á árunum 2006–2008 varð breyting á því hvernig lífeyrissjóðir tóku tillit til tekna sjóðfélaga við mat á tekjumissi vegna örorku. Það leiddi til þess að lífeyrisþegar með umframtekjur samkvæmt nýju útreikningsaðferðinni fengu óvænt engan eða skertan örorkulífeyri frá sjóðunum. Í kjölfar gagnrýni á breytta framkvæmd lífeyrissjóða var kallað eftir aðgerðum stjórnvalda til að takmarka skerðingu sjóðanna og var vakin athygli á mögulegri víxlverkun milli þeirra og almannatrygginga. Ákveðið var að vinna gegn þessum áhrifum og draga úr skerðingum lífeyrissjóða. Var það gert með lögum nr. 106/2011. Fyrirkomulaginu sem þá var lögfest var ætlað að koma tímabundið í veg fyrir þessa víxlverkun. Tímabundna fyrirkomulagið hefur verið framlengt árlega frá gildistöku þess, nú síðast árið 2024.
Nýlegar breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga sem taka gildi 1. september nk. gera að verkum að ekki er hægt að framlengja núverandi bráðabirgðafyrirkomulag þar sem forsendur útreikninga verða þá breyttar. Þessu frumvarpi er ætlað að fela í sér framtíðarlausn vegna víxlverkana greiðslna örorkulífeyris úr kerfi almannatrygginga og hjá lífeyrissjóðum. Ef víxlverkunin verður ekki stöðvuð og lífeyrissjóðir hefja að taka fullt tillit til greiðslna frá almannatryggingum mun hluti þeirra fjárveitinga sem ætlaðar voru til að bæta kjör örorkulífeyrisþega í reynd verða nýttur til að draga úr útgjöldum lífeyrissjóða fremur en að skila sér til örorkulífeyrisþega í formi hærri heildargreiðslna. Þá styður afnám víxlverkunar við aukinn jöfnuð í samfélaginu þar sem lífeyrisþegar með lægri tekjur munu fá greiðslur sem endurspegla betur rétt þeirra í báðum kerfum, án þess að greiðslur annars aðilans leiði til skerðingar á greiðslum hins. Af þessum ástæðum, forseti, er talið brýnt að rjúfa víxlverkunina varanlega.
Gert er ráð fyrir að tillaga frumvarpsins hafi ekki mjög veruleg áhrif á lífeyrissjóði og að hún geti leitt til hækkunar á árlegum greiðslum lífeyrissjóða til örorkulífeyrisþega um á bilinu 1,3–1,6 milljarða kr. eftir gildistöku nýs greiðslukerfis almannatrygginga 1. september 2025.
Forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.