156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

430. mál
[16:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér undir liðnum fundarstjórn forseta áðan gagnrýndi ég það að svona stórt mál væri að koma svona seint fyrir þingið. Ég vil taka það sérstaklega fram, sérstaklega í ljósi ummæla hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hér um að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði nú að fara að bregða fæti fyrir örorkulífeyrisþegum þessa lands, að það er fjarri því og ég vísa þeim ummælum til föðurhúsanna. En við gerum samt sem áður verulegar athugasemdir við þetta frumvarp og þá sérstaklega hvernig það kemur fram. Við styðjum að það verður að finna lausn á víxlverkuninni. Hins vegar er það mat mitt að það sé ekki hægt að fara í þessa vinnu öðruvísi en að horfa til jöfnunarframlagsins til jöfnunar vegna örorkubyrði lífeyrissjóða vegna þess að örorkubyrði sjóðanna er með mismunandi hætti. Þetta mun þýða að það mun líklega fara miklu meira út úr þeim sjóðum sem eru með mikla örorkubyrði og þar með mun þetta hafa verulega áhrif á tryggingafræðilega stöðu þeirra sjóða.

Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða greining liggur fyrir um áhrif þessara breytinga á sjóðina og einstaka sjóði?