156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

430. mál
[16:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér er um ansi stórt og flókið mál að ræða sem á sér mjög langa sögu og getur haft gríðarleg áhrif ef ekki er rétt með farið og tel ég því mjög varhugavert hversu seint þetta kemur inn, að koma með málið svona búið þar sem það er einhvern veginn á skjön við fyrri áform um hvernig ætti að leysa þessi mál og hvernig ætti að þróa þessar miklu breytingar sem eru nú fram undan og taka gildi að fullu 1. september varðandi almannatryggingakerfið og hvernig á að mæta því gagnvart svo lífeyrissjóðunum, að það sé verið að breyta um stefnu í miðri á, ef svo má segja, án þess að sé búið að ganga frá öllum lausum endum, og að ætla okkur hér mjög stuttan tíma og svona hraða vinnu í gegnum þingið er mjög varhugavert. Ég held að því sé mikilvægt að við tökum hér mikilvæga yfirferð á þessu máli um hvernig við sjáum heildarsamhengið í þessu klárast, af því að lífeyrissjóðirnir, sem voru stofnaðir hér miklu heilli, sem betur fer bara, á sínum tíma til að tryggja eftirlaun fólks og tryggja tekjur fólks að starfsævi lokinni, svo var örorkuhlutanum bætt inn síðar — það var ekki hið upprunalega hlutverk lífeyrissjóðanna. Svo hefur það þróast bara eins og er og ég ætla kannski ekki að fara neitt djúpt í þá sögu en það sem hefur alla vega gerst á þeim tíma er að örorkubyrði sjóðanna hefur ekki verið jafn skipt. Það hefur verið misjafnt og örorkubyrðin er mjög mismikil á milli sjóða og hafa hér verið skiptar skoðanir á milli lífeyrissjóðanna og lífeyrissjóðakerfisins og kannski stjórnvalda um hvernig þessu hefur verið mætt og hafa stjórnvöld verið að greiða inn í sjóðina til að jafna þessa örorkubyrði eða bregðast við þessari auknu örorkubyrði sjóðanna.

Svo er ákveðin hér þessi stóra og mikla jákvæða kerfisbreyting á almannatryggingakerfinu sem er ætlað að hvetja til aukinnar virkni og draga úr þörfinni á því. Þar sem það stóð til að það myndi draga úr kostnaði lífeyrissjóðanna af örorkubyrðinni þá töldu stjórnvöld sig geta fjármagnað að hluta til þær breytingar á almannatryggingakerfinu með því að draga úr þessu mótframlagi, enda væri verið að draga úr kostnaði lífeyrissjóðanna við kerfið. Þetta var mjög umdeilt, það að hætta að greiða mótframlagið alfarið, því var samþykkt að greiða hluta af því og stýra því til þeirra sjóða sem höfðu mestu örorkubyrðina og jafna þannig aðeins byrðina innbyrðis á milli sjóðanna. Svona var gengið frá málinu af síðustu stjórnvöldum þannig að allir gátu farið svona þokkalega vel frá borði, að við værum að gera jákvæðar breytingar á almannatryggingakerfinu, mjög jákvæðar, sem væru hvati og drægju úr aukinni örorku og hjálpuðu fólki aftur til virkni og inn á vinnumarkaðinn og því myndi kostnaður lífeyrissjóðanna dragast saman og því væri hægt að draga aðeins úr þessum framlögum en þeir fengu samt framlög sem var stýrt til að jafna á milli þeirra.

En svo núna sjáum við fjármálaáætlun þar sem þessi jöfnun á örorkubyrði sjóðanna er algjörlega tekin út og sett á núll, mótframlagið algjörlega tekið út af stjórnvöldum. Á sama tíma er komið hér inn með frumvarp nokkrum dögum fyrir þinglok sem virðist einhvern veginn auka örorkubyrði lífeyrissjóðanna. Við ætlum að draga úr framlögum til þeirra og auka byrðina á þeim í hlutverki sem þeim var ekki ætlað upphaflega. Þetta snýst ekkert um það hvort einhver eigi rétt á bótum ef hann lendir í tjóni. Við erum með þetta kerfi, erum að byggja heild. Þetta er hvernig byrðunum er skipt innbyrðis á milli kerfisins sem á að bæta þetta. Um það er þessi umræða. Þetta er um að mikilvæg kerfi okkar virki, almannatryggingakerfið virki eins og við viljum að það virki og lífeyrissjóðakerfið, sem eru eftirlaun og réttindi allra þeirra þegna landsins sem greiða til lífeyrissjóðanna. Við þurfum að fara varlega þarna. Þannig kemur mjög á óvart að sjá þetta frumvarp sem við erum að ræða hér.

Á sama tíma á ekki að setja krónu frá stjórnvöldum í að jafna byrðina. Þetta getur haft gríðarleg áhrif á stöðu kerfisins og getur verið mjög ójafnt á milli sjóðfélaga. Þetta mun bara gera það að verkum að margir munu reyna að flýja úr ákveðnum lífeyrissjóðum sem hafa meiri örorkubyrði í dag og þeir sem eru að velja sér sjóð í fyrsta sinn núna þurfa að velja vel. Ég get ekki séð að hæstv. ríkisstjórn sé búin að gera ráð fyrir þessum áhrifum eða hvernig eigi að koma í veg fyrir þau og hvernig eigi að taka afleiðingunum af þessu. Ég held að við verðum og hv. nefnd verði að gefa sér góðan tíma í þetta og ræða þetta í heildarsamhengi og kalla til sín umsagnaraðila, hagaðila og þá sem þekkja til í þessu og tryggja að hin upphaflegu áform sem fyrri ríkisstjórn var með og kom í framkvæmd, að breyta almannatryggingakerfinu, draga almennt úr örorkubyrðinni og hvetja til virkni, sem ég held að við séum öll sammála um að sé mikilvægt — og þannig sé hægt að nálgast samtalið við lífeyrissjóðina um hvort mótframlagið geti ekki dregist saman, jafnvel fallið úr gildi, en ekki einhvern veginn að gera það þannig að við séum að breyta kerfunum sem fjármagna almannatryggingakerfið, bótakerfið, með því að taka algerlega mótframlagið út frá lífeyrissjóðunum en samt gera það að verkum að það séu miklar líkur eða nánast augljóst að örorkubyrði einstakra lífeyrissjóða aukist umfram hina og aukist almennt hjá þeim öllum.

Þetta getur ekki hafa átt að vera planið. Ég á mjög bágt með að trúa því ef þetta hefur verið planið hjá stjórnvöldum. Ef þetta er planið væri áhugavert að fá að heyra hvernig það sé rökstutt og hvernig það eigi að ganga upp og hvernig eigi að taka við afleiðingunum af þessu sem þetta mun augljóslega valda. Það getur tekið svolítinn tíma fyrir fólk líka að átta sig á áhrifunum og fyrir áhrifin að koma fram. Hvað ætlum við að segja við komandi kynslóðir sem sjá allt í einu það, eða komandi ellilífeyrisþega sem fá greitt úr lífeyrissjóði, að út af aðgerðum stjórnvalda þá fái þessi hér 10.000 kr. í sínum lífeyrissjóði en sá sem er búinn að borga jafn mikið í einhvern annan lífeyrissjóð fái 15.000 bara út af því að þetta kerfi var svona? Ég trúi því ekki að við ætlum að ganga frá þessu þannig og segi það bara enn og aftur: Það er alvarlegt hvað þetta kemur seint hér inn, hvað þessu er ætlaður stuttur tími, sérstaklega af því að það er rosalega stór kúvending í málinu frá því sem fyrri stjórnvöld voru búin að leggja upp með og eins og málin voru afgreidd og sett af stað. En ef þetta hefði bara verið í takt við það sem áður hefur verið rætt og áður hefur verið stefnt að þá er allt annað að taka málið inn og byggja á fyrri umræðu og fyrri gögnum og áhrifamati og klára málið þannig á skemmri tíma. Það er bara ekki saman að jafna. Við þurfum að bera virðingu fyrir ábyrgðinni sem við höfum hérna. Hér erum við með mál sem kannski er erfitt að bregðast við eftir á. Áhrifin geta komið fram hægt og rólega á löngu tímabili og fólk ekki áttað sig á því fyrr en seint þannig að þá ber sérstaklega að fara með aðgát inn í þetta mál og fara sér hægt. Ég hvet hv. nefnd til þess að gera það og við þingheimur berum mikla ábyrgð á því og þá þýðir ekkert bara að ætla að tikka í box, að vera verkstjórn og afgreiða þetta hratt. Við verðum að gera það vel. Ef maður er sakaður um einhverja tafaleiki eða eitthvað verður bara svo að vera. Ég ætla ekki að gefa afslátt af ábyrgðinni og framtíðarlífeyri fólksins í landinu. Við þurfum að standa vörð um hann. Það er okkar hlutverk, það eru okkar skyldur og vonandi fæ ég þingheim með okkur í þá vegferð.