fjáraukalög II 2025.
Virðulegi forseti. Ég er að eiga góðan dag hér sem fjármálaráðherra og hérna er mitt seinna frumvarp í dag. Svo verðum við bara að sjá til hvað gerist í framhaldinu. Ég mæli fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2025 sem er að finna á þskj. 584. Með frumvarpinu eru lagðar fyrir Alþingi tillögur um breytingar á fjárheimildum ríkissjóðs sem leiða einfaldlega af breyttri skipan Stjórnarráðs Íslands, í samræmi við forsetaúrskurði sem tóku gildi 15. mars síðastliðinn. Eins og kunngert var við myndun nýrrar ríkisstjórnar, verkstjórnarinnar svokölluðu, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins þann 21. desember 2024 eru þær breytingar gerðar á skipan Stjórnarráðsins að ráðuneytum fækkar úr tólf í ellefu. Þar að auki fá tvö ráðuneyti nýtt nafn svo heiti þeirra endurspegli betur breytta verkaskiptingu.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri, með það að markmiði að ná betri tökum á fjármálum ríkisins og bæta lífskjör landsmanna. Breytingar á skipan Stjórnarráðsins sem hér eru til umfjöllunar eru liður í þeirri stefnu og endurspegla vilja ríkisstjórnarinnar til að styrkja stjórnsýsluna með skýrari verkaskiptingu og sameiningu ráðuneyta.
Með samþykkt þingsályktunar nr. 1/156 þann 5. mars sl., ályktaði Alþingi að það styddi fyrirhugaða breytingu á fjölda og heitum ráðuneyta. Í samræmi við afgreiðslu Alþingis öðluðust þrír forsetaúrskurðir gildi þann 15. mars: Forsetaúrskurður nr. 4/2025 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, forsetaúrskurður nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sbr. 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, og forsetaúrskurður nr. 6/2025 um skiptingu starfa ráðherra, og féll þá forsetaúrskurður nr. 142/2024 jafnframt úr gildi.
Markmið þessara breytinga er að tryggja að stjórnsýslan þróist í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar og sé betur í stakk búin til að sinna þeim verkefnum sem fram undan eru. Með frumvarpinu sem hér er lagt fram er leitast við að færa fjárheimildir í samræmi við nýja skipan ráðuneyta, án þess þó, og þetta skiptir máli, að breyta heildarfjárveitingum eða hafa áhrif á afkomu ríkissjóðs.
Við flutning stjórnarmálefna milli ráðuneyta, sbr. 4. og 21. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, skal jafnframt flytja fjárheimildir og starfsmenn milli ráðuneyta að því marki sem eðlilegt er talið að teknu tilliti til umfangs verkefna og aðstæðna. Í samræmi við það hafa ráðuneytin gert með sér samkomulag um flutning fjárheimilda á grundvelli viðmiða sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sett.
Forseti. Í frumvarpinu eru gerðar tillögur um millifærslur og breytta staðsetningu fjárheimilda sem nema samtals rétt tæplega 60 milljörðum króna. Breytingarnar eru fyrst og fremst tvenns konar. Annar vegar tæknilegar breytingar á númerum og heitum fjárlagaliða og viðfanga vegna stofnunar nýrra ráðuneyta og flutnings verkefna. Hins vegar er um að ræða millifærslur fjárheimilda milli ráðuneyta til samræmis við og til að spegla þessa breyttu verkaskiptingu.
Umfangsmestu breytingarnar varða tilfærslu verkefna frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu, sem lagt hefur verið niður, annars vegar til nýs menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og hins vegar til atvinnuvegaráðuneytis. Flutningarnir ná til málaflokka sem tengjast safna- og menningarmálum, nýsköpun, ferðaþjónustu, markaðseftirliti og neytendamálum, fjölmiðlun og hluta framhaldsfræðslu. Jafnframt flyst stjórnsýsla ráðuneytisins sjálfs, sem skiptist milli fyrrnefndu ráðuneytanna.
Þá flytjast húsnæðis- og skipulagsmál frá innviðaráðuneytinu til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, auk þess sem breytingar verða á verkefnum milli annarra ráðuneyta, svo sem vegna jafnréttismála, framhaldsfræðslu og verkefna Lands og skógar.
Það er rétt að árétta að frumvarpið felur ekki í sér efnislegar breytingar á fjárheimildum málefnasviða eða málaflokka heldur einungis aðlögun að breyttri skipan Stjórnarráðsins. Gert er ráð fyrir að hagræðing vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins nemi um 200 millj. kr. á yfirstandandi ári og um 330 millj. kr. á ársgrundvelli.
Forseti. Með þessu frumvarpi er tryggt að fjárheimildir ríkisins endurspegli með skýrum og gagnsæjum hætti þá stjórnskipulegu breytingu sem þegar hefur verið ákveðin og framkvæmd. Ég legg því til að frumvarpinu verði, að lokinni þessari umræðu, sem ég hlakka mikið til að eiga, vísað til 2. umræðu og hv. fjárlaganefndar.