156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

fjáraukalög II 2025.

427. mál
[17:18]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er rétt sem hann nefnir með þetta frumvarp, það er í sjálfu sér bara afgreiðslumál í samræmi við, eins og hv. þingmaður nefnir, breytingar sem þegar hafa tekið gildi. Við fækkuðum ráðuneytum um eitt frá því sem var hjá síðustu ríkisstjórn. Hv. þingmaðurinn nefnir að efnisleg áhrif þessa máls séu í sjálfu sér ekki mikil og það er alveg rétt. Þó eru efnisleg áhrifin auðvitað þau að við fækkuðum ráðuneytum um eitt og efnisleg áhrif þessa frumvarps er auðvitað sú hagræðing sem í því felst, 200 millj. kr. strax á þessum árshluta og um 330 millj. kr. á ársgrundvelli.

Þessar yfirlýsingar sem hv. þingmaður nefnir um að annar fjárauki sé væntanlegur eru réttar. Sem starfandi fjármálaráðherra er ég ekki í stöðu til að geta upplýst nákvæmlega um hvenær það verður en ég á frekar von á því að það verði fyrir þinglok í samræmi við fyrri yfirlýsingar þeirra ráðherra sem hv. þingmaðurinn vísar í.