156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

fjáraukalög II 2025.

427. mál
[17:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og auðvitað er hæstv. ráðherra að fylla í skarðið fyrir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og við þurfum að taka mið af því. En hins vegar bið ég nú samt hæstv. ráðherra að segja okkur frá því eins og hún getur hvers er að vænta vegna þess að það eru nokkrar vikur síðan þessi fjárauki III var afgreiddur úr ríkisstjórn, Við erum með þessar yfirlýsingar og einhverjar fleiri um hvaða breytingar við munum sjá með honum. Ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, að ég hélt að þetta hlyti að vera forgangsmál að koma þessu inn í þingið, þá er ég að vísa í fjárauka III, því að það er stutt eftir af þinginu, jafnvel þó að við verðum lengur, sem ég geri nú ráð fyrir. Það koma í byrjun mars yfirlýsingar um breytingar og fyrir einhverjum vikum síðan koma yfirlýsingar frá hæstv. forsætisráðherra um að það sé búið að ganga frá þessu í ríkisstjórn. Þannig að spurningin er tvenns konar: Getur hæstv. ráðherra eitthvað upplýst okkur um hvers er að vænta? Ef hæstv. ráðherra getur það ekki, þá er kannski spurningin: Hvað dvelur orminn langa ef það eru einhverjar vikur síðan þetta var afgreitt úr ríkisstjórn, verkstjórninni, þar sem er full samstaða meðal allra þingflokka? Af hverju í ósköpunum er þessi fjárauki sem er búið að segja frá og ganga frá í ríkisstjórninni ekki kominn inn í þingið? Ekki veitir okkur af tímanum til að vinna fjáraukann, virðulegur forseti.