fjáraukalög II 2025.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefnir það og vitnar í, ef mig misminnir ekki, orð hæstv. forsætisráðherra annars vegar og orð umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hins vegar um væntanlegan fjárauka. Þetta hefur verið þannig að það var fjárauki vegna ÍL-sjóðs, svo er það þessi sem varðar breytingar á Stjórnarráðinu og svo er það sá þriðji sem ég geri fastlega ráð fyrir að sé væntanlegur bara núna í vikunni þar sem verða einmitt svona fyrstu pólitísku strokurnar. Þar eru t.d. aukin útgjöld til lögreglu. Þarna eru útgjöld í þágu sérsveitarinnar, af því að ég sé að hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson er hérna staddur, og það var mér persónulegt gleðiefni að það skyldi vera þarna. Svo eru þarna töluverðar upphæðir í þágu samgöngumála og vegagerðar sem haldast í hendur við aðgerðir ríkisstjórnarinnar um veiðigjald. Það eru 3 milljarðar talsins í samgöngumál og það er, eins og ég segi, þessi tenging við veiðigjöldin sem við höfum þegar rætt eitthvað lítillega um hér í þessum sal. Hann er væntanlegur í vikunni. Þarna eru líka útgjöld í þágu heilbrigðis- og velferðarmála í samræmi við yfirlýsingar okkar t.d. í Viðreisn um að það séu ekki sumarlokanir á þessum stöðum sem viðkvæmustu hópar samfélagsins leita til, þannig að þetta verður pólitískur fjárauki eins og þingmaðurinn nefndi og fjárauki sem sá ráðherra sem hér stendur er mjög stolt af.