fjáraukalög II 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir góða yfirferð yfir þennan fjárauka sem er mjög tæknilegs eðlis og í raun og veru ekkert nýtt í honum að finna, engar nýjar fjárveitingar. En þegar ég óskaði eftir því að fara í andsvar við hæstv. ráðherra þá langaði mig einmitt að spyrja um þennan fjárauka III sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á í sínu andsvari. Það var ánægjulegt að heyra hæstv. ráðherra vera með væntingar um að sá fjárauki yrði lagður fram fyrir þinglok því ég held að það væri erfitt að leggja hann fram eftir þau. (Gripið fram í.) Ég held að það yrði þungt fyrir þingið að afgreiða hann eftir þinglok þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til þess að koma með hann inn í þingið áður en við lokum hér og læsum.
Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í þetta, ég veit og geri mér grein fyrir því að við erum svo sem búin að ræða um þessa skiptingu hérna og ég veit að ég er kannski, virðulegur forseti, aðeins ósanngjarn þar sem hæstv. ráðherra er hér í staðgengilshlutverki í dag, en ég hef verulegar áhyggjur af þessari færslu sem kemur fram á bls. 42, um hjúkrunar- og dvalarrými, þar sem verið er að færa frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og húsnæðismálaráðuneytis málefni aldraðra. Þá erum við að tala um öldrunarþjónustu. Ég veit að ég er ekki einn á þessari skoðun. Ég hef átt ansi mörg samtöl frá fólki sem starfar á þessu sviði sem hefur áhyggjur af þessu. (Forseti hringir.) Hvernig var umræðan í ríkisstjórn varðandi þennan flutning, ef ráðherra gæti upplýst mig aðeins um það?