fjáraukalög II 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið. Ég tek undir með hæstv. ráðherra og ég geri mér alveg grein fyrir því að svona breytingar eins og við erum að fjalla um hér geta menn séð með sitthvorum gleraugunum og haft sitthvora skoðun á því og auðvitað er það bara ríkisstjórn hvers tíma sem tekur ákvörðun um það hvar málunum er best fyrir komið og ber síðan ábyrgð á því. Ég hef svo sem alveg skilning á því, það er nú yfirleitt þannig þegar nýjar ríkisstjórnir taka við að það eru tilfærslur á verkefnum og málaflokkum milli ráðuneyta, það er ekkert nýtt. En mig langaði hins vegar að spyrja að þessu vegna þess að ég heyri áhyggjuraddir víða vegna þessa. En ég hlakka nú bara til að fá þennan fjárauka inn í fjárlaganefnd og hef ekki kannski stórar áhyggjur af því að þetta verði málið sem verði þungt í nefndinni þennan þingvetur. Mig langar hins vegar að spyrja, bara af því að ég man það ekki, ég held að það hafi komið hérna fram í þinginu að það sé verið að tala um að hagræðing á ársgrundvelli vegna fækkunar ráðuneyta sé um 320 milljónir. Hagræðing af lokun aðalskrifstofu er 230 milljónir og síðan er það launakostnaður ráðherra, aðstoðarmanna og stöðugildi bílstjóra sem er um 100 milljónir. Nú er hæstv. fjármálaráðherra utanþingsráðherra. Er búið að leggja hans kostnað (Forseti hringir.) inn í þetta á móti eða er þetta nettóútkoman miðað við hans launakostnað og kostnað?