156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

fjáraukalög II 2025.

427. mál
[17:31]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég gat þess í framsöguræðu minni að það væri gert ráð fyrir því að hagræðing vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins myndi nema um 200 millj. kr. króna á yfirstandandi ári og um 330 millj. kr. á ársgrundvelli. Við munum auðvitað líka að það voru lagðar fram skriflegar fyrirspurnir um þetta. Mig minnir að það hafi verið þáverandi hv. þm. Helga Vala Helgadóttir sem dró fram kostnað við fjölgun ráðuneyta á sínum tíma, hann var um 1,5 milljarðar. Það munar sannarlega um slíkar upphæðir og það var algjörlega skýrt við þessar stjórnarmyndunarviðræður, ekki síst af hálfu Viðreisnar, að það kæmi ekki annað til álita en að fækka þeim til þess að sýna það einfaldlega í verki. Þegar farið er fram á það að stjórnendur stofnana leitist við að hagræða — það er auðvitað líka gert ekki bara með því að spara krónur og aura heldur að skoða hvernig við verjum tímanum okkar, hvernig gæði þjónustu eru o.s.frv. — þá sé það sýnt strax skýrt í verki með því að það sé hafist handa með ráðuneytunum, alveg eins og við þekkjum það að hagræðingarkrafan er meiri á ráðuneytunum en hún er á öðrum stofnunum og þá fylgjum við auðvitað bara góðu fordæmi frá síðustu ríkisstjórn því að þetta skiptir máli. Varðandi nákvæm launakjör hæstv. fjármálaráðherra, sem ég er hér staðgengill fyrir, þá ætla ég að viðurkenna að ég þekki það ekki gjörla með hvaða hætti það er reiknað inn í hér, en það breytir því ekki í stóra samhenginu að það er heilt ráðuneyti að hverfa. Eins og ég segi, þarna erum við að tala um á ársgrundvelli 330 millj. kr.