156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

fjáraukalög II 2025.

427. mál
[17:34]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar bara í örstuttu máli að fara yfir frumvarp til fjáraukalaga II fyrir árið 2025 sem er í raun og veru bara mjög tæknilegur fjárauki sem gengur út á það að endurraða fjármagni og verkefnum innan Stjórnarráðsins eftir breytingu sem varð á stjórnskipaninni þegar ný ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var mynduð hérna 21. desember. Það eru engar nýjar upphæðir í þessu. Það er ekki verið að bæta í fjármagn heldur er einfaldlega verið að færa hér á milli ráðuneyta og málefnasviða.

Ég sit í hv. fjárlaganefnd og hlakka til að fá þetta mál á dagskrá nefndarinnar. Ég hef hvorki vonir né væntingar til þess, eins og ég sagði hér áðan í andsvari við hæstv. staðgengil fjármála- og efnahagsráðherra, að það verði mikil átök í nefndinni um þennan fjárauka enda er hann, eins og ég sagði, bara mjög tæknilegur og felur ekki í sér neina breytingu eða neinar pólitískar áherslur að neinu leyti aðrar en þær sem fram eru komnar. En það vekur undrun mína og ég skal alveg viðurkenna það, frú forseti, að þegar mér barst til eyrna að það væri fjárauki á leiðinni fyrir þingið þá hélt ég að nú loksins væri kominn fjáraukinn sem maður hefur verið að bíða frekar spenntur eftir sem er í raun og veru þessi pólitíski fjárauki, fjáraukinn þar sem ríkisstjórnin mun sýna á spilin; hvert hún ætlar að stefna og hvaða breytingar hún ætlar að fara í. Það kom fram í andsvörum áðan við hæstv. dómsmálaráðherra, sem er staðgengill fjármála- og efnahagsráðherra hér í umræðunni í dag, að það væri von á þeim fjárauka, ég heyrði hana segja fyrir þinglok en hún vill meina að hún hafi sagt fyrir vikulok. Það breytir ekki öllu en hann er alla vega væntanlegur núna mjög fljótlega.

Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég óttast tímarammann í þessu máli öllu saman. Ég óttast það að við séum að fara að fá hér inn mjög efnismikinn og pólitískan fjárauka þar sem, eins og ég sagði áðan, ríkisstjórnin er núna að koma og sýna okkur á spilin í raun og veru í fyrsta skipti. Í fjármálaáætlun er auðvitað stóra myndin teiknuð upp og við eigum eftir að taka 2. umræðu um fjáraukann hér í þingsal, sem verður mjög áhugaverð og ég hlakka mikið til að eiga það samtal við þingið og ráðherrann. En þetta er í fyrsta skipti sem þau sýna okkur eitthvað á spilin varðandi þetta ár; hvað menn ætla að gera og hvað hæstv. ríkisstjórn ætlar sér á þessu ári. Það mun taka tíma og það mun væntanlega taka tíma inni í hv. fjárlaganefnd að ræða þann fjárauka. Í ljósi sögunnar og þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað hér í þingsal um slíka fjárauka þá veit ég það og man að hún hefur tekið alveg töluvert langan tíma oft á tíðum og hvað þá þegar við erum að tala eins og í þessu tilfelli um fyrsta pólitíska fjárauka nýrrar ríkisstjórnar sem mjög margir hafa beðið spenntir eftir. Hæstv. dómsmálaráðherra kom aðeins inn á í ræðu sinni hvað í honum væri að finna og miðað við það sem hæstv. ráðherrann las hér upp þá get ég alveg tekið undir að það hljómar ekkert illa. En það er mér til efs að þetta sé það eina sem er í honum og því sakna ég þess og er búinn að sakna þess töluvert lengi, virðulegur forseti, að þessi fjárauki sé ekki komin inn í þingið og til nefndarinnar.

Ég held að það sé ágætt aðeins til upprifjunar — af því að sá sem hér stendur var nú í því verkefni í nóvember í fyrra að setja saman fjárlögin fyrir 2025 í starfsstjórn, sem var ekkert auðvelt verkefni. Það var ekkert auðvelt verkefni þegar við vorum hér orðin örfá eftir í þinginu og stór hluti þingmanna kominn í kosningabaráttu í sínum kjördæmum og við sátum hér eftir með þetta verkefni. En við náðum að gera það og ég segi að ég get verið stoltur af þeirri vinnu sem við fórum í í fjárlaganefndinni við að klára fjárlögin þar inni. Umræðan í þingsal um fjárlögin fyrir árið 2025 var nánast engin og starfsstjórnin náði að gera þetta í sátt meðal nefndarmanna. Ein af forsendunum fyrir þessari sátt var sú að fjárlögin voru samþykkt nánast óbreytt. Það voru örlitlar lagfæringar sem voru gerðar á fjárlögunum. Við fórum inn í styrkveitingarnar til þessara smærri aðila og fórum inn í ýmsar stofnanir sem höfðu óskað eftir aðstoð, fjárhagslegri aðstoð, en að öðru leyti var voru fjárlögin nánast óbreytt.

Af hverju var þetta gert með þessum hætti, virðulegur forseti? Jú það var gert með þeim hætti einfaldlega vegna þess nefndarmenn í fjárlaganefnd þess tíma voru þess fullviss að ný ríkisstjórn, sem myndi taka við að afloknum kosningum í desember í fyrra, myndi einhenda sér í það verkefni að setja sitt mark á fjárlög ársins 2025 með fjárauka. Það sem ég er að segja er að það var mjög meðvituð ákvörðun fjárlaganefndar að keyra fjárlögin nánast hrá og óbreytt í gegnum nefndina, í gegnum þingið og skapa þannig svigrúm fyrir nýja ríkisstjórn að gera lagfæringar og koma með sínar áherslur, sín stefnumál og setja sín fingraför á fjárlögin í fjárauka sem við öll bjuggumst við að kæmi sem fyrsta eða annað mál nýrrar ríkisstjórnar. Þannig að ég er pínu undrandi og hissa á að sá fjárauki sé ekki enn þá kominn hér til þingsins og hef af því áhyggjur. Ég myndi hafa af því áhyggjur fyrir hönd þeirra sem eru í ríkisstjórn að tíminn sé einfaldlega orðinn of knappur til þess að ná að klára miðað við þinglok og bendi þingheimi á að samkvæmt starfsáætlun þingsins á þing að klárast 13. þessa mánaðar. Ég hef svo sem ekki miklar væntingar til þess að það gerist en það eru mörg risastór mál eftir í þinginu sem á eftir að ræða sem munu taka mikinn tíma og það þýðir ekkert fyrir stjórnarliða eða einhverja álitsgjafa úti í samfélaginu að tala um það að stjórnarandstaðan sé í einhverjum tafaleikjum í því. Við erum hér að ræða um veiðigjöldin sem eiga eftir að koma inn í 2. umræðu. Við eigum eftir að tala um fjáraukann sem er risamál, stefnumarkandi plagg ríkisstjórnarinnar 2025–2030. Það mun taka tíma. Við vorum að fá hér inn og erum að fara að fá hér inn nýtt frumvarp varðandi strandveiðarnar. Þar eru skiptar skoðanir og menn munu vilja tala í því máli. Við erum með búvörulögin inni í atvinnuveganefnd sem við vitum að er mikil — ja, ég held að menn séu ekki alveg sáttir eða ekki samstaða um það í þinginu, við skulum orða það þannig. Við erum með grásleppuna, við erum með bókun 35, við erum með Jöfnunarsjóð og svona gæti ég lengi talið áfram. Allt risamál sem þurfa umræðu.

Virðulegur forseti. Ég vildi bara benda á það hér að ég óttast afdrif þessa komandi fjárauka, hvenær sem hann rekur nú hingað inn í þingsal. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn og ráðherra til þess að nota þennan tíma og koma með þennan fjárauka, ef hann á að koma á annað borð inn í þingið, sem allra fyrst þannig að það sé einhver möguleiki fyrir okkur að taka alla vega efnislega umræðu um hann.

En að því sögðu um fjárauka II þá bara hlakka ég til að fá hann inn í fjárlaganefnd og taka umræðu við nefndarmenn um þennan ágæta fjárauka. Ég endurtek það sem ég sagði áðan að ég hef svo sem ekki væntingar til þess að umræðurnar verði miklar um hann. Umræðurnar fóru náttúrlega í raun og veru fram þegar við tókum umræðu um breytta skipan Stjórnarráðsins, frumvarp sem var flutt í febrúar, ef ég man rétt, þar sem verkaskiptingin var talin upp. Þessi fjárauki er í raun og veru afleiðing af því þannig að efnislega er kannski ekki mikið um að tala, enda engar nýjar fjárveitingar heldur einfaldlega tilfæringar eða tilfærslur á þeim fjármunum sem fyrir eru miðað við stöðuna eins og hún er í dag.

Ég held að ég láti þetta bara gott heita um þennan fjárauka. Ég ætla ekkert að fara yfir þessar breytingar. Ég held að það þjóni ekki tilgangi sínum heldur hlakka ég bara til að takast á við þetta verkefni í fjárlaganefnd. Ég ítreka þá beiðni mína og hvatningu til ríkisstjórnarinnar um að ef þessi pólitíski fjárauki III á líta dagsins ljós og við eigum að geta átt hér þokkalega eðlilega umræðu um hann í þingsal þá þarf hann að fara að rata hingað inn.