156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

fjáraukalög II 2025.

427. mál
[17:46]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu yfirferð og vil taka undir með honum um að ég tel ekki að þessi fjárauki sem hér er til umfjöllunar verði kannski stóra málið í umfjöllun hv. fjárlaganefndar. Ég hlustaði líka á yfirferð hæstv. ráðherra og einnig á skoðanaskipti og samskipti hv. þingmanns við hæstv. ráðherra þar sem m.a. var komið inn á að í þessu fælist sparnaður, með breytingum á þessum verkefnaflutningnum. Þar voru svo sem ekki nefndar stóru tölurnar en ég hygg að ég hafi það rétt eftir ráðherra að hún hafi sagt að það munaði um það, það munaði um minna. Þá gat ég ekki að því gert að leiða hugann að því að það virðist fyrst og fremst skipta máli þegar verið er að horfa til þess hvað hlutir kosta og hvernig hægt er að spara og lágmarka umfang og útgjöld í rekstri ríkisins. En við erum hér líka að fást við annað frumvarp sem heitir kílómetragjald. Þar erum við að fara úr mjög einföldu kerfi sem kostar mjög lítið fyrir ríkið í að innheimta og sækja sín gjöld, yfir í kerfi sem verður gríðarlega kostnaðarsamt, auk þess að vera bara til verulegs óhagræðis fyrir ekki síst landsbyggðina. Af hverju stafar þessi ólíka nálgun að mati hv. þingmanns? Við erum að fara úr, kannski í sinni einföldustu mynd mætti segja að rukka þrjá aðila. Hér er verið að rukka jafnvel tugþúsundir, hundruð þúsunda aðila þar sem er fyrirséð að innkoman mun að verulegu leyti fara í innheimtukerfið sjálft.