fjáraukalög II 2025.
Herra forseti. Ég skal glaður fara yfir þessa brú aftur. (SVS: Takk. …) Tengingin milli þess sem við ræðum hér, þessa fjárauka og spurningarinnar minnar er varðaði kílómetragjaldið, er einfaldlega þessi: Hvernig metur hv. þingmaður það og hvernig stendur á því — og það er mikið gustukaverk að ná sparnaði upp á 330 milljónir, ég tek undir með hv. þingmanni að það er auðvitað talsverður peningur og jafnvel látið í veðri vaka að það sé einn af meginstoðum eða tilgangur málsins. En á sama tíma erum við í 2. umræðu að fjalla um þetta svokallaða kílómetramál. Þar erum við að fara úr tiltölulega ódýru kerfi yfir í rándýrt kerfi þar sem stærsti hlutinn, eða í það minnsta mjög stór hluti þess fjár sem stendur til með að afla með þeirri leið, fer í umsýsluna sjálfa. Með öðrum orðum, hæstv. ráðherra er hér stolt af áætluðum 330 millj. kr. sparnaði í vinstri vasanum en virðist ekki hafa nokkrar áhyggjur af þeim útgjöldum sem verða samfara kílómetrarfrumvarpinu í hægri vasanum. Ég er einfaldlega að spyrja hvort hv. þingmaður meti að hér fari saman hljóð og mynd.