fjáraukalög II 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið og að útskýra spurninguna fyrir mér. Nú skil ég hvert hann var að fara. Takk fyrir það. Þetta er alveg rétt hjá hv. þingmanni, auðvitað má spyrja sig að því hvort það fari saman hljóð og mynd í þessu, að við spörum á einum stað og aukum síðan útgjöldin á öðrum. En staðreyndin er nú þannig að þetta er bara daglegt brauð hér í þinginu og þar sem sá sem hér stendur hefur verið í sveitarstjórn sömuleiðis þá er það nú þannig að við erum að bæta í á einum stað og skera niður á öðrum þannig að það er svo sem ekkert nýtt undir sólinni í því. En hvort eitt réttlæti annað, það fer náttúrlega bara eftir eðli verkefnanna. Já, það fer bara eftir eðli verkefnanna. Mig langar bara að segja við hv. þingmann, virðulegur forseti: Stundum erum við bara á þeim stað og með þannig verkefni í höndunum að við þurfum að bæta í fjármagni. Það er ekkert að því og þá er bara ágætt að geta tekið eitthvað fé á móti. En það verður þá að vera á einhverjum þannig stöðum að við séum ekki að skerða þjónustu eða ef við ætlum að skerða þjónustu þá er það bara mjög meðvituð pólitísk ákvörðun að gera það. Þannig að ég skil alveg hvaðan hv. þingmaður kemur og jú, jú, það má alveg setja þau gleraugu á sig að þarna fari ekki saman hljóð og mynd. Það er alveg ljóst hvað varðar kílómetragjaldið, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega að því, að þar erum við að fara í alveg einstaklega flókið kerfi. En ég skil hvaðan hv. þingmaður kemur.