156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

raforkulög og stjórn vatnamála.

89. mál
[18:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála.

Frumvarpið felur í sér breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, og lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Annars vegar er um að ræða heimild til handa Umhverfis- og orkustofnun í sérstökum undantekningartilvikum til að fallast á flýtimeðferð við afgreiðslu umsókna um virkjunarleyfi með breytingum á 34. gr. raforkulaga. Skilyrði flýtimeðferðar er að brýn þörf sé á að hefja eða halda áfram starfsemi. Í flýtimeðferð felst styttur samráðstími og fjögurra vikna frestur til að afgreiða mál. Hins vegar eru lagðar til breytingar á 1. mgr. 18. gr. laga um stjórn vatnamála þannig að skerpt verði á orðalagi a-liðar ákvæðisins svo að ljóst sé að það taki einnig til breytinga á vatnshloti vegna framkvæmda, svo sem vatnsaflsvirkjana. Markmið frumvarpsins er að bregðast við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2457/2024, en með dóminum var ógilt heimild Umhverfisstofnunar frá 9. apríl 2024 til breytinga á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun og ákvörðun Orkustofnunar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust 34 umsagnir auk minnisblaðs frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Nefndin ákvað að senda tillögur að breytingum á frumvarpinu sem birtust í minnisblaðinu til umsagnar þeirra aðila sem sent höfðu umsögn um frumvarpið til að tryggja gott samráð við vinnslu breytingartillagna í nefndinni. Um þær breytingartillögur bárust 11 umsagnir og eru gögn málsins aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í stjórnarskránni er mælt fyrir um þrígreiningu ríkisvaldsins; Alþingi og forseti fara saman með löggjafarvaldið, framkvæmdarvaldið er í höndum forseta og stjórnvalda, en dómendur fara með dómsvaldið. Á handhöfunum þremur hvílir stjórnskipuleg skylda að halda sig innan valdmarka sinna og seilast ekki inn á verksvið hver annars. Í kjölfar fyrrnefnds dóms héraðsdóms í máli E-2457/2024, sem áfrýjað var til Hæstaréttar, hafa komið fram sjónarmið um að bíða beri niðurstöðu Hæstaréttar áður en lagabreytingar verða gerðar með vísan til þrígreiningar ríkisvaldsins. Meiri hlutinn áréttar að frumvarpið felur ekki í sér sérlög um framkvæmdina Hvammsvirkjun heldur hefur það að geyma almennar lagabreytingar. Frumvarpið hefur almennt gildistökuákvæði, er ekki ætlað að hafa afturvirk réttaráhrif og á því ekki að hafa áhrif á dómsmálið enda byggja dómstólar niðurstöðu sína á því réttarástandi sem ríkti þegar atvik málsins urðu. Verði frumvarpið að lögum verður þar með ekki höggvið nærri sjálfstæði dómsvaldsins.

Með a-lið 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 1. mgr. 18. gr. laga um stjórn vatnamála þar sem kveðið er á um heimild til breytinga á vatnshloti. Lagt er til að framkvæmdum verði bætt við upptalningu ákvæðisins um breytingar sem geti haft áhrif á vatnsgæði, vistfræðilega, vatnsformfræðilega eða efna- og eðlisefnafræðilega eiginleika yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots. Með þeim breytingum er ætlunin að bregðast við þeirri túlkun héraðsdóms í áðurnefndu máli að ummæli í nefndaráliti umhverfisnefndar við meðferð frumvarps þess sem varð að lögum um stjórn vatnamála hafi leitt til þess að túlka yrði a-lið 1. mgr. 18. gr. laganna með vísan til þess að vilji löggjafans hafi staðið til þess að undanskilja m.a. vatnsaflsvirkjanir frá undanþáguheimild a-liðar. Líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins leiðir af þessari niðurstöðu héraðsdóms að óheimilt er að breyta vatnshloti vegna vatnsaflsvirkjana og fjölda annarra framkvæmda, t.d. vegagerðar, gerðar siglingavega og flóðavarna. Niðurstaða dómsins útiloki í raun hvers kyns framkvæmdir á Íslandi sem leiða til breytinga á vatnshloti.

Að mati nefndarinnar er nauðsynlegt að bregðast við þessari stöðu, m.a. með vísan til raforkuöryggis landsins, og tryggja að heimilt sé að heimila breytingu á vatnshloti vegna framkvæmda, t.d. vegna vatnsaflsvirkjana. Nefndin beindi þeirri spurningu til ráðuneytisins hvort breytingarnar sem lagðar væru til með a-lið 2. gr. frumvarpsins væru fullnægjandi svo efni 7. mgr. 4. gr. vatnatilskipunarinnar yrði innleitt með réttum hætti. Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar var ítrekað að tilefni frumvarpsins væri áðurnefnd túlkun héraðsdóms sem hefði í för með sér að allar framkvæmdir þar sem óska þarf eftir heimild Umhverfis- og orkustofnunar til breytinga á vatnshloti samkvæmt lögum um stjórn vatnamála teljist ekki heimilar samkvæmt lögunum. Við vinnslu frumvarpsins hafi ýmsar útfærslur og tillögur að orðalagi í þágu samræmis við vatnatilskipunina komið til skoðunar. Þar sem um sé að ræða afar flókna löggjöf og þess að brýnt sé að taka af tvímæli um heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til breytinga á vatnshloti vegna framkvæmda hafi verið ákveðið að leggja til lágmarksbreytingu á lögunum en umfjöllun um frekari breytingar vísað til starfshóps ráðherra sem skipaður var í febrúar síðastliðnum og falið að endurskoða lög um stjórn vatnamála með það að markmiði að tryggja að vatnatilskipunin verði innleidd með réttum hætti.

Meiri hlutinn tekur undir að nauðsynlegt sé að skýra heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til að heimila breytingar á vatnshloti vegna framkvæmda með þeirri breytingu sem a-liður 2. gr. frumvarpsins felur í sér. Sú breyting er jafnframt í samræmi við ákvæði vatnatilskipunarinnar og upphaflegan tilgang 18. gr. laga um stjórn vatnamála. Í skýringum við 18. gr. frumvarpsins sem varð að lögum um stjórn vatnamála eru tekin dæmi um framkvæmdir sem féllu undir ákvæðið, þ.e. vatnsaflsvirkjanir, flóðavarnir, vegagerð, gerð siglingavega og aðrennslisskurða og miðlunarlón. Ljóst er að fleiri framkvæmdir geta fallið þarna undir, t.d. framkvæmdir vegna rennslisstýringar straumvatna og efnistöku úr þeim, þ.m.t. vegna flóða- og bakkavarna.

Meiri hlutinn fagnar því að endurskoðun laganna sé hafin og leggur áherslu á að hún verði unnin hratt og í fullu samræmi við ákvæði vatnatilskipunarinnar.

Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til breytingar á frumvarpinu sem nú verður gerð grein fyrir en vísað er til ítarlegri umfjöllunar um þær í áliti meiri hlutans sem liggur frammi. Virkjunarleyfi til bráðabirgða. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar flýtimeðferð við afgreiðslu umsókna um virkjunarleyfi, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Með 1. gr. er lagt til að við raforkulög verði bætt nýju ákvæði sem hafi að geyma heimild til handa Umhverfis- og orkustofnun í sérstökum undantekningartilvikum til að fallast á flýtimeðferð við afgreiðslu umsókna um virkjunarleyfi. Skilyrði flýtimeðferðar er að brýn þörf sé á að hefja eða halda áfram starfsemi skv. 4. gr. laganna. Í flýtimeðferð felst að samráðstími er styttur í að hámarki eina viku og fjögurra vikna frestur gefinn til að afgreiða umsókn eftir að fullnægjandi umsókn berst. Töluverð gagnrýni kom fram á styttingu samráðs og skamman afgreiðslutíma og sjónarmið um að slík flýtimeðferð gangi á rétt almennings samkvæmt Árósasamningnum. Á hinn bóginn komu fram sjónarmið um að frumvarpið fæli í sér skref til einföldunar á leyfisveitingaferli orkumála en mikilvægt sé að heimild til flýtimeðferðar sé fyrir hendi þegar almannahagsmunir eru í húfi. Bent var á að raforkuöryggi íslensks samfélags sé skilgreint sem brýnir almannahagsmunir samkvæmt orkustefnu og raforkulögum en grunnstoðir samfélagsins reiði sig á öruggt framboð raforku.

Þá kom fram að heimild til veitingar bráðabirgðaheimildar sé að finna í lögum, t.d. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um fiskeldi, og rétt að samræma löggjöfina að því leyti fremur en að mæla fyrir um heimild til flýtimeðferðar við afgreiðslu virkjunarleyfis. Umhverfis- og orkustofnun yrði þar með heimilt að veita bráðabirgðavirkjunarleyfi í sérstökum undantekningartilvikum þegar brýn þörf væri á að hefja eða halda áfram framkvæmd. Í minnisblaði sínu féllst ráðuneytið á að slík tillaga geti verið skynsamleg en í henni felist samræming á þeim málsmeðferðarreglum sem nýsameinuð Umhverfis- og orkustofnun starfi eftir, fyrir sameiningu hafi raforkulög verið á ábyrgð Orkustofnunar og hollustuháttalöggjöfin á ábyrgð Umhverfisstofnunar. Þá sé það mat ráðuneytisins að það kunni almennt að vera gagnlegt að löggjöfin bjóði upp á bráðabirgðaheimildir við tilteknar aðstæður en þær kunni t.d. að vera fyrir hendi hafi leyfi verið fellt úr gildi með dómi eða stjórnvaldsúrskurði sökum annmarka á málsmeðferð.

Meiri hlutinn telur heimild til veitingar bráðabirgðaleyfis heppilegri en heimild til flýtimeðferðar almennrar umsóknar um virkjunarleyfi með vísan til þess að veiting bráðabirgðaheimildar felur í sér þrönga undanþáguheimild sem er háð skilyrðum sem Umhverfis- og orkustofnun setur í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi starfsemi, sbr. 5. gr. laganna. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir framangreint mat ráðuneytisins og leggur til að í stað heimildar til flýtimeðferðar umsóknar komi nýtt ákvæði um virkjunarleyfi til bráðabirgða. Meiri hlutinn áréttar að um undanþáguákvæði er að ræða sem einungis getur átt við í sérstökum undantekningartilvikum líkt og orðalag 1. og 2. mgr. a-liðar 1. töluliðar breytingartillögu meiri hlutans ber með sér.

Í 7. gr. a laga um hollustuhætti og mengunarvarnir er að finna heimild til veitingar bráðabirgðaheimildar fyrir starfsemi. Þeirri grein var bætt við lögin með lögum nr. 28/2023 en með þeim var brugðist við athugasemdum ESA vegna kvörtunar til stofnunarinnar vegna veitingar rekstrarleyfa til bráðabirgða og veitingar tímabundinna undanþága frá starfsleyfi til reksturs fiskeldisstöðva. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu voru ákvæði þess frumvarps sem varð að lögum nr. 28/2023 unnin í samráði við ESA. Orðalag hins nýja ákvæðis um virkjunarleyfi til bráðabirgða byggist á 7. gr. a hollustuháttalaga. Þar er m.a. kveðið á um að frestur til að gera skriflegar athugasemdir við veitingu bráðabirgðaheimildar skuli ekki vera lengri en ein vika frá auglýsingu Umhverfis- og orkustofnunar og hámarksfrestur Umhverfis- og orkustofnunar til afgreiðslu umsóknar fjórar vikur eftir að fullnægjandi umsókn berst.

Meiri hlutinn áréttar að aðkoma almennings að ákvörðunum um veitingu virkjunarleyfis til bráðabirgða er tryggð með 5. mgr. a-liðar 1. töluliðar breytingartillögu meiri hlutans sem lýtur að aðgengi almennings að upplýsingum um umsókn um bráðabirgðaheimild, sbr. skilyrði um að hún sé auglýst á vefsvæði leyfisveitanda, með möguleika á að koma að athugasemdum. Meiri hlutinn leggur áherslu á að til þess að þátttökuréttindi almennings verði í raun og veru virk er mikilvægt að setja upp leiðir þannig að almenningur geti t.d. verið í áskrift að efni um þessi mál hjá Umhverfis- og orkustofnun og fengið tilkynningu þegar umsókn er auglýst á vef. Um er að ræða grundvallarstoð þátttökuréttinda almennings þar sem ekki er unnt að kynna sér efnið og senda inn athugasemdir ef almenningi er ekki kunnugt um að fyrir liggi umsókn um virkjunarleyfi til bráðabirgða. Í ljósi þess að um viðameiri framkvæmd er að ræða en þær sem 7. gr. a laga um hollustuhætti og mengunarvarnir tekur almennt til er að mati meiri hlutans rétt að frestur til að veita umsögn verði lengri en þar er kveðið á um, þ.e. verði að lágmarki tvær vikur. Loks er kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna virkjunarleyfis til bráðabirgða að finna í d-lið 1. töluliðar tillögunnar.

Í umsögnum Landsvirkjunar, Samorku, Viðskiptaráðs Íslands, SA og SI um breytingartillöguna sem lögð var til í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar voru gerðar athugasemdir við 3. mgr. tillögunnar sem kveður á um að skilyrði fyrir því að unnt sé að óska eftir bráðabirgðaheimild sé að fullnægjandi umsókn um virkjunarleyfi liggi fyrir. Þegar sótt sé um bráðabirgðaheimild vegna þess að virkjunarleyfi hafi verið fellt úr gildi með dómi og málinu verið áfrýjað sé varla hægt að líta svo á að fullnægjandi umsókn um virkjunarleyfi liggi fyrir. Skynsamlegt sé að gera þá breytingu á ákvæðinu að gert sé að skilyrði að fullnægjandi umsókn um virkjunarleyfi liggi fyrir eða hafi áður verið samþykkt af Umhverfis- og orkustofnun.

Meiri hlutinn bendir á að skoða þarf hvert tilvik fyrir sig. Þegar stjórnvaldsákvörðun hefur verið ógilt á grundvelli formannmarka kann eftir atvikum að vera unnt að líta svo á að fullnægjandi umsókn liggi fyrir sem taka beri aftur til meðferðar að frumkvæði stjórnvalds eða að framkominni beiðni umsækjanda. Sé ákvörðun felld úr gildi vegna efnisannmarka er meginreglan sú að ógildingin er endanleg, þ.e. stjórnvald getur ekki tekið ákvörðun að nýju með sama efnislega inntaki og hin fyrri. Á því er þó m.a. sú undantekning að ef ákvörðun eða leyfi var fellt úr gildi þar sem talið var að ákvörðunina hefði skort lagastoð getur stjórnvaldið mögulega tekið sömu ákvörðun í málinu síðar en sótt stoð fyrir henni í aðra lagaheimild. Með vísan til þessa telur meiri hlutinn að umsækjandi kunni að geta sótt um bráðabirgðaheimild samkvæmt ákvæðinu þegar virkjunarleyfi hefur verið fellt úr gildi með dómi eða stjórnvaldsúrskurði sökum annmarka á málsmeðferð, enda verði þá talið að fullnægjandi umsókn liggi fyrir.

Í umsögnum sömu aðila komu fram ábendingar um að mikilvægt væri að sams konar bráðabirgðaheimild næði einnig til framkvæmdaleyfa samkvæmt skipulagslögum. Án þess muni ávinningur af því að inn komi heimild til útgáfu virkjunarleyfis til bráðabirgða ekki nýtast að fullu þar sem framkvæmdir séu háðar bæði framkvæmda- og virkjunarleyfum. Með frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á skipulagslögum en þau lög heyra undir málefnasvið félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Meiri hlutinn beinir því til þess ráðuneytis að taka málið til skoðunar og leggja til breytingar á lögunum ef þurfa þykir.

Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á 1. mgr. 33. gr. laganna um gjaldtöku vegna útgáfu leyfa þannig að gjald verði tekið fyrir bráðabirgðaleyfi líkt og önnur leyfi sem stofnunin veitir. Samkvæmt a-lið 1. gr. frumvarpsins er lögð til sú breyting á 4. mgr. 34. gr. laganna að leyfisveitandi skuli auglýsa á vefsvæði sínu umsókn um leyfi í stað auglýsingar í Lögbirtingarblaðinu. Því til samræmis leggur meiri hlutinn til að 3. málsliður sömu málsgreinar um að umsækjandi kosti birtingu slíkrar auglýsingar falli brott enda mun Umhverfis- og orkustofnun ekki bera kostnað af birtingu auglýsingar á eigin vef.

Í öðru lagi er lögð til breyting á 2. gr. frumvarpsins er varðar vísun til verndar- og orkunýtingaráætlunar í b-lið 2. mgr. 18. gr. laga um stjórn vatnamála. Í 2. mgr. 18. gr. laga um stjórn vatnamála er nánar kveðið á um þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að hægt sé að heimila breytingar á vatnshloti sem leiða til þess að umhverfismarkmið nást ekki. Í b-lið 2. mgr. 18. gr. er kveðið á um það skilyrði að tilgangur framkvæmdanna eða umsvifanna vegi þyngra vegna almannaheilla og/eða ávinnings fyrir heilsu og öryggi manna eða fyrir sjálfbæra þróun en ávinningur af því að umhverfismarkmið náist. Ákvæðið felur í sér innleiðingu á c-lið 7. töluliðar 4. gr. vatnatilskipunarinnar. Í b-lið 2. gr. frumvarpsins er lagt til að þetta skilyrði teljist uppfyllt sé um að ræða virkjunarframkvæmd sem falli undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Í umsögnum komu fram afar mismunandi sjónarmið um þessa grein frumvarpsins. Annars vegar kom fram stuðningur við ákvæðið en það væri til þess fallið að stuðla að framgangi virkjunarframkvæmda sem þegar hafi náðst sátt um í rammaáætlun. Mikilvægt sé að styðja við framgang endurnýjanlegra orkukosta og setja virkjunarframkvæmdir með grænni orku í forgang við afgreiðslu leyfa og skipulags. Horfa þyrfti til tilskipana Evrópusambandsins um notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum í því sambandi en þar sé til að mynda ákvæði sem mæli fyrir um að þar til kolefnishlutleysi verði náð skuli grænar orkuframkvæmdir taldar í þágu yfirgnæfandi almannahagsmuna þegar slíkt mat þurfi að fara fram á grundvelli vatnatilskipunarinnar. Hins vegar voru gerðar miklar athugasemdir við ákvæðið, m.a. að það fæli í sér eðlisbreytingu á ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar og vægi hennar aukið á kostnað mats Umhverfis- og orkustofnunar. Verndar- og orkunýtingaráætlun sé stefnumótandi áætlun og sé ekki ætlað að koma í staðinn fyrir faglegt og sjálfstætt mat stofnana á hverri framkvæmd, m.a. á því hvort almannaheill vegi þyngra en ávinningur af því að umhverfismarkmið náist. Jafnframt komu fram sjónarmið þess efnis að með ákvæðinu væri brotið gegn samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og væri í andstöðu við vatnatilskipunina. Skilyrði b-liðar 2. mgr. 18. gr. laganna og c-liðar 7. töluliðar 4. gr. vatnatilskipunarinnar um almannaheill verði ekki uppfyllt með þeim hætti sem frumvarpið leggi til enda þurfi sérstakt mat að fara fram á öllum skilyrðum undanþáguheimildar í hverju tilviki fyrir sig samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins.

Hinn 5. mars 2025 kvað EFTA-dómstóllinn upp dóm í máli nr. E-13/24 Friends of the Earth Norway o.fl. gegn norska ríkinu, þ.e. eftir að frumvarpið var lagt fram og því vísað til nefndar. Með dómnum veitti EFTA-dómstóllinn ráðgefandi álit varðandi túlkun hugtaksins „brýnir almannahagsmunir“ í skilningi c-liðar 7. mgr. 4. gr. vatnatilskipunarinnar. Ein spurningin sneri að því hvernig meta skuli hvort brýnir almannahagsmunir séu til staðar í skilningi c-liðar 4. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar. Í niðurstöðu dómstólsins kom m.a. fram að stjórnvöld skuli vega áætlaðan ávinning af verkefni á móti þeim afleiðingum sem af verkefninu hljótast og leiða til rýrnunar á stöðu vatnshlots. Ákvæði c-liðar 7. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar skuli túlkað á þann veg að þess sé krafist að þeir hagsmunir sem eigi við séu metnir í hverju tilviki fyrir sig til þess að ákvarða hvort til staðar séu brýnir almannahagsmunir. Hlutlægt mat þurfi að eiga sér stað þannig að hinir brýnu almannahagsmunir sem hafi verið staðfestir sem slíkir, sem réttlæti breytingar á yfirborði vatnshlots, vegi meira en þau markmið umhverfisverndar að koma í veg fyrir rýrnun á yfirborði vatnshlots. Hvaða sjónarmið skipta máli til að ákvarða tilvist brýnna almannahagsmuna skuli metið í hverju tilviki fyrir sig. Í svörum sínum við öðrum spurningum áfrýjunardómstólsins útilokaði dómstóllinn að hreinar efnahagslegar ástæður, svo sem efling þjóðarbús, réttlæti að vikið sé frá meginreglunni um varnir á stöðu vatnshlots en slík túlkun grafi undan markmiðum tilskipunarinnar í heild sinni. Efnahagslegar ástæður verði að þjóna almannahagsmunum til þess að geta talist réttlæta að vikið sé frá meginreglu tilskipunarinnar. Þættir sem tengjast félagslegri eða efnahagslegri stöðu tiltekins svæðis geti á hinn bóginn hugsanlega talist til réttlætingarástæðna.

Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar er tekið fram að með frumvarpinu sé með engu hróflað við almennum kröfum sem varða skilyrði leyfisveitingar, t.d. hvað varðar mat á umhverfisáhrifum og aðrar almennar kröfur. Markmið og tilgangur verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun sé að fyrir liggi faglegt mat á efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum þáttum virkjunarkosta áður en ákvarðanir séu teknar í þessum málum. Matið byggist á niðurstöðum og rannsóknum verkefnisstjórnar, faghópa og sérfræðinga á vegum rammaáætlunar. Áætlunin feli því í sér heildstætt hagsmunamat sem snúi að öllum þeim þáttum sem í lögunum greinir og varðar þjóðarhag, allt með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Á grundvelli þessa mats ákveði Alþingi hvaða virkjunarkostir eigi að falla í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk. Þannig verði að telja eðlilegt og rétt að við mat skv. b-lið 2. mgr. 18. gr. laganna sé tekið mið af því faglega mati sem fram kemur í tillögu verkefnisstjórnar til ráðherra um verndar- og orkunýtingaráætlun. Þó sé það mat ráðuneytisins að rök hnígi að því að Umhverfis- og orkustofnun meti sjálf hvort skilyrði b-liðar 2. mgr. 18. gr. laganna séu uppfyllt hverju sinni.

Meiri hlutinn áréttar að verndar- og orkunýtingaráætlun er stefnumótandi áætlun um nýtingu landsvæða þar sem virkjunarkostir eru flokkaðir í þrjá flokka, orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk, en ekki er fjallað um einstakar framkvæmdir með ítarlegum hætti í áætluninni. Þeir virkjunarkostir sem settir eru í orkunýtingarflokk þurfa að fara í mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og leyfisveitingaferli viðeigandi stofnana ef stefnt er að nýtingu þar sem fram fer ítarlegt mat á hverri virkjunarframkvæmd. Því telur meiri hlutinn ekki hægt að slá því föstu með b-lið 2. gr. frumvarpsins að skilyrði b-liðar 2. mgr. 18. gr. laganna, að tilgangur framkvæmdanna eða umsvifanna vegi þyngra vegna almannaheilla og/eða ávinnings fyrir heilsu og öryggi manna eða fyrir sjálfbæra þróun en ávinningur af því að umhverfismarkmið náist, teljist uppfyllt sé um að ræða virkjunarframkvæmd sem fellur undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Með vísan til þess og niðurstöðu EFTA-dómstólsins sem fjallað var um hér að framan þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að meta þurfi þá hagsmuni sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig, svo hægt sé að skera úr um hvort til staðar séu brýnir almannahagsmunir sem vegi meira en þau markmið umhverfisverndar að koma í veg fyrir rýrnun á yfirborði vatnshlots leggur meiri hlutinn til að b-liður 2. gr. frumvarpsins falli brott.

Að lokum er lögð til orðalagsbreyting á 1. málsl. c-liðar 2. gr. sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif. Vísast að öðru leyti til umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Jónína Björk Óskarsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason.

Virðulegi forseti. Ég á örfáar mínútur eftir af tíma mínum og ég ætla ekkert að orðlengja þetta mikið lengur en mig langar þó að þakka fyrir samstarfið í nefndinni í þessu máli. Mér fannst nefndin vera nokkuð einhuga um að þetta liti svona út, þ.e. að við myndum breyta vatnshlotinu, að við myndum fara úr flýtimeðferð yfir í bráðabirgðaheimild og síðan að fella út þetta með almannahagsmunina, það þótti eðlilegt að bregðast við því. Síðan eru smávægilegar breytingar sem fjallað er um bæði í nefndaráliti og í frumvarpinu sjálfu. En ég vil bara að lokum fá að þakka nefndinni fyrir gott samstarf vegna þessa máls.