raforkulög og stjórn vatnamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka tækifærið til að fá að koma hérna upp og tjá mig meira um þetta mál. Ég held að það sé öllum ljóst að við þurfum að efla skilvirkni þegar kemur að leyfisveitingum. Við getum ekki haft leyfisveitingaferli eins og kóngulóarvef en við getum heldur ekki haft það eins og villta vestrið. Ég verð að segja að ég saknaði þess sárlega í ræðu framsögumanns þegar ég spurði út í almannahagsmuni að hv. þingmaður fjallaði líka um að það gætu verið almannahagsmunir sem tengdust öðrum þáttum. Brothættar byggðir eru vissulega einn slíkur þáttur. Við gætum verið að horfa á einstaka atvinnuuppbyggingu út frá breiðari hagsmunum sömuleiðis.
Mig langar til að koma inn á nokkra þætti hér. Ég tek undir þær breytingar sem lagt var upp með við að skýra lagatextann þegar kemur að vatnshlotinu. Ég held í sjálfu sér að þá hafi nefndin náð utan um það verkefni að gera breytingar á lagatextanum þannig að það sé auðveldara, sama hvort það á við um breytingar fyrir framkvæmdir nú í sumar eða aðrar framkvæmdir, að ráðast í ólíka vatnsnýtingu án þess að lenda í ströngum kæruferlum. Mér finnst þetta vera jákvætt skref þó að gjarnan hefði ég viljað sjá niðurstöðu dómsins sem við bíðum nú öll eftir, sem er í meðferð eftir Hvammsvirkjunardóminn og sem á að vera úrskurður í núna í lok þessa mánaðar, ég held að við höfum öll viljað sjá niðurstöðu þar til þess að vera viss um að það væri ekkert þar út af standandi þannig að við gætum tekið enn þá betur utan um þetta verkefni. Eins og annar hv. þingmaður, Ólafur Guðmundur Adolfsson, kom inn á áðan þá er þessi umgjörð mjög flókin og löggjafinn þarf að vanda sig alveg svakalega því að ef okkur gengur ekki nógu vel í útfærslunni, hvað munum við þá sjá? Þá munum við sjá fleiri kæruleiðir opnast og ný kærumál. Þess vegna er ótrúlega mikilvægt að þessi vinna við heildarendurskoðun gangi vel, ekki bara við innleiðingu vatnatilskipunarinnar sjálfrar heldur líka framkvæmdin á áætlunum sem þar fylgja með og hefur t.d. skort þegar kemur að jarðhita o.s.frv. Ég brýni því líka fyrir meiri hlutanum og ekki síst fyrir ráðherra málaflokksins að setja skýran fókus á það að klára þessa innleiðingu á áætlununum, undiráætlununum, sem skipta svo miklu máli fyrir kæruhlutann.
Ég verð hins vegar að játa að það eru ákveðin vonbrigði varðandi útfærslu bráðabirgðaleyfisins. Mér fannst nefndin ná vel utan um það í samtali að við værum að horfa á það að þegar leyfi hefði verið veitt og síðan kæmu fram ákveðnir minni háttar formgallar sem myndu fella leyfið úr gildi, eins og t.d. gerðist í tilfelli Hvammsvirkjunar, þá væri þessi bráðabirgðaheimild, sem vissulega er líka í fiskeldinu, innleidd þannig að hægt væri í ákveðnum undantekningartilfellum þegar brýnir hagsmunir lægju við að veita slíka bráðabirgðaheimild. Sú leið sem birtist hins vegar í þessari niðurstöðu hér opnar á það að hægt sé að sækjast eftir slíkri bráðabirgðaheimild áður en formlegri efnismeðferð Umhverfis- og orkustofnunar er lokið. Þú getur verið að sækjast eftir bráðabirgðaheimild áður en leyfi hefur verið veitt á meðan hugsunin var sú að það væri eingöngu eftir að leyfi hefði verið veitt og fullri málsmeðferð lokið sem slík bráðabirgðaleyfisveiting væri heimil.
Ég tel þetta vera óheppilegt af því að ef við erum að horfa á það að efla skilvirkni þá er það ákveðin skilvirknigildra að það sé hægt að sækjast eftir slíkri bráðabirgðaheimild áður en formlegri málsmeðferð er lokið hjá stofnuninni, því að það getur reynt á það þá að aðilar séu að sækjast eftir slíkum leyfum. Það eykur álag, þessi leyfi eru kæranleg, þannig að við getum verið að sjá bara meira umfang og meira flækjustig í málsmeðferðinni sjálfri í stað þess að leyfa henni að klárast og fá niðurstöðu um hvort leyfið verði veitt og ef minni háttar ágalli leiðir til þess að leyfið falli úr gildi geti stofnunin á þeim tímapunkti í undantekningartilfellum tekið afstöðu um hvort veita eigi bráðabirgðaleyfi. Það er nær því sem við sjáum í fiskeldinu. Þegar reynt hefur á þetta ákvæði þar þá er það eftir að viðkomandi fyrirtæki var búið að fá úthlutað leyfi. Það var ekki áður en það fékk úthlutað leyfinu til að byrja með. Ég hefði viljað sjá hér að við hefðum þessa bráðabirgðaleyfisheimild eingöngu eftir formlega málsmeðferð. Ég tel að það myndi auka traust á ferlinu að formlegri málsmeðferð væri lokið hjá stofnuninni og myndi líka auka skilvirkni þannig að stofnanir festist ekki í því að vera að meta þessa mjög svo matskenndu þætti sem við áttuðum okkur hérna á áðan að er mjög erfitt að meta, hvað eru brýnir hagsmunir, og tók eins og margir þekkja ár hjá Umhverfisstofnun síðast. Við værum því að lágmarka þann fjölda mála sem stofnunin þyrfti í raun og veru að festast í, sem hægir á öllum innviðum stofnunarinnar og á öllu kerfinu. Ég segi þetta þekkjandi vel hvernig þessi mál virka í stofnanaumhverfinu. Ég segi þetta með áherslu á það að koma í veg fyrir skilvirknigildrur.
Virðulegi forseti. Ég er þakklát fyrir vinnuna sem hefur átt sér stað hvað vatnshlotið varðar en niðurstaðan um hvenær þessi bráðabirgðaheimild er sett fram í lagatexta er ekki í takt við þá hugsun sem ég held að nefndin hafi hugsað. Því vil ég leggja til ef markmiðið er að ná utan um málið út frá skilvirkni og að auka traust á ferlinu að við vísum þessu máli aftur til nefndar.