raforkulög og stjórn vatnamála.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála, um flýtimeðferð og breytingu á vatnshloti. Þetta er mikilvægt mál og markmið þess, eins og kom fram í erindi framsögumanns, var að bregðast við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 15. janúar síðastliðinn. Með dómnum var ógilt heimild Umhverfisstofnunar frá 9. apríl 2024 til breytinga á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun, sem og ákvörðun Orkustofnunar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun. Á sínum tíma þegar þessi niðurstaða var fengin í héraðsdómi var það auðvitað áfall, svo að maður leyfi sér bara að orða það með þeim hætti, fyrir alla vega þá aðila sem hafa komið að málum og verið að gera ráð fyrir því með góðum hug að það væri verið að innleiða Evróputilskipunina rétt og þessi svokallaða almannaheill ætti við um t.d. allar vatnsaflsvirkjanir, þannig að ég ætla bara að þakka fyrir að það hafi verið brugðist skjótt við varðandi það að semja þetta frumvarp og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt.
Ég ætla líka að leyfa mér að segja að þetta er flókið. Þetta hefur reynst okkur í nefndinni dálítið snúið og margir verið kallaðir fyrir nefndina og auðvitað skýrir það myndina að ákveðnu leyti en þó ekki. Ég vil t.d. meina, alla vega situr eftir í mínum huga eftir gestakomurnar að ég er ekki endilega sannfærður um að sú breyting sem við erum að gera núna á lögum um stjórn vatnamála muni einfaldlega duga en ég ætla að leyfa mér samt að vona að sú sé niðurstaðan.
Ég hef svo sem kannski enga viðbót við akkúrat ákvæðið eins og það er núna. Ég vil meina að nefndin hafi vandað sig vel í þessu máli og bara þakka formanni nefndarinnar fyrir að hafa haldið vel á þessari vinnu. Ég var sérstaklega ánægður með það eftir að það var ákveðið að gera breytingarnar að við skyldum senda þær breytingar til umsagnar til þeirra aðila sem áður höfðu veitt umsagnir. Mér finnst það vera til hreinnar fyrirmyndar og ég er viss um að umsagnaraðilar hafa kunnað líka að meta það.
Nú er það svo að þessar breytingar eru kannski ekki stórvægilegar breytingar, leyfi ég mér að segja, en ég vil ganga út frá því, eins og væntanlega flestir nefndarmenn hafa gert, að á sínum tíma þegar það voru búin til lög um rammaáætlun hafi í rauninni verið gert ráð fyrir því að þeir kostir sem færu í gegnum rammaáætlun og fengju í rauninni stöðu nýtingar, að vera settir í nýtingarflokk, að það fylgdi því þá í rauninni sjálfkrafa að það væri gert með almannaheill í huga.
Nú vil ég líka nefna það að eins og þessi dómur hljómaði í upphafi var auðvitað fleira undir heldur en bara vatnsaflsvirkjanir. Það var auðvitað margt annað, það var t.d., eins og hér var réttilega nefnt, efnistaka, varnargarðar og fleiri þættir sem augljóst var að yrðu mögulega fyrir áhrifum af þessu. Því vil ég leyfa mér að segja að málið hafi verið brýnt og þakka fyrir að það hafi verið brugðist hratt við með því að semja þetta frumvarp sem við erum hér að ræða.
Ég held að formaður hafi í rauninni farið ágætlega í gegnum nefndarálitið sem er heilar níu síður og ég ætla ekki að fara að endurtaka það sem þar kemur fram en vil lýsa mig bara sammála allflestu sem þar kemur fram. Ég vil engu að síður varpa upp aftur þeim áhyggjum sem ég hef um að mögulega verði það niðurstaðan að það sem við erum að leggja hérna til sé ekki nægilega mikið. Ég ætla að leyfa mér að byggja það á þeim álitum sem komu fyrir nefndina. Ég vonast auðvitað til þess að hafa mögulega bara rangt fyrir mér í þeim efnum en ég óttast það að við séum ekki að sjá það síðasta í þessu máli.
Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir er með vangaveltur um breytingar á raforkulögunum varðandi þessa undanþáguheimild. Ég hef ekki eins miklar áhyggjur og hún um að það verði vandamál gagnvart þeim sem heyra undir þá breytingu, að það verði einhver gríðarleg ásókn gagnvart þeim stofnunum sem um málið fjalla, að það verði einhver biðröð þar hjá aðilum sem ætla að fá þar einhverja fyrirgreiðslu. Ég sé það ekki fyrir mér en auðvitað kann ég að hafa rangt fyrir mér í þeim efnum. Nú var auðvitað hv. þingmaður forstjóri Orkustofnunar og þekkir málið væntanlega ágætlega og kannski hefur hún séð og kannski segir hún okkur frá því hér í andsvari á hverju hún byggir akkúrat þá niðurstöðu.
Ég ætla að þakka nefndinni kærlega fyrir, ég ætla að leyfa mér að segja góða vinnu og vandaða vinnu og ég vil meina að við höfum gert góðar betrumbætur á því frumvarpi sem liggur hér fyrir og ég ætla að leyfa mér að lýsa yfir að ég styð það.