156. löggjafarþing — 51. fundur,  2. júní 2025.

raforkulög og stjórn vatnamála.

89. mál
[19:43]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vildi fyrst og fremst fá að koma hér upp til að taka undir jákvæðar raddir úr nefndinni sem draga fram góða verkstjórn en líka góðan anda. Þetta er ný nefnd, þ.e. mjög mörg okkar eru að koma úr annarri átt inn á Alþingi núna en maður finnur fyrir því að það er víða þekking á mikilvægum verkefnum. Það er dálítil þraut að leggja fyrir svona hóp í raun mjóa sneið inn í dálítið flókið og margþætt regluverk sem gildir um þessa hluti og átta sig á því að ef maður togar í einhvern spotta sem virðist standa út úr þá kannski hreyfist allur hnykillinn. Þess vegna er ekki sama hvernig þetta er gert. Ég held að við höfum verið að vanda okkur og vona og sýnist að það hafi gengið vel. Alla vega er prýðileg samstaða um þetta til að höggva á ákveðna hnúta sem virðast vera komnir upp varðandi ekki bara eina framkvæmd heldur margar sambærilegar sem snúa að þessu nýja orði í mínu lífi, vatnshloti.

Jens Garðar Helgason, hv. 3. þm. Norðaust., var að bjóða upp í dans um atvinnustefnu. Ég ætla ekki að þiggja hann. Við dönsum síðar. Það er alveg rétt samt að orkan og stóriðjan er ein af stoðunum í atvinnulífi þjóðarinnar, sjávarútvegur og tengdur útflutningur er önnur, en við skulum ekki tala eins og þetta séu einu stoðirnar. Við skulum ekki gleyma ferðaþjónustunni. — Nú, byrjar þá þingmaðurinn að dansa. Við skulum ekki gleyma ferðaþjónustunni og hugvitstengdar greinar eru núna komnar fast að eða yfir sjávarútveg í útflutningstekjum eins og kynnt var á síðasta iðnþingi þannig að við erum góðu heilli komin með fjölbreyttara atvinnulíf. Hluti af þessu atvinnulífi, ferðaþjónustan, byggir á gæðum og fegurð landsins þannig að það er ekki einfalt að segja að allt sem megi vel virkja skuli virkja og telja sig þannig vera að tala í nafni atvinnulífs nú og til framtíðar heldur þurfum við að vega miklu fleiri og ólíkari hagsmuni og ekki bara okkar eigin hagsmuni heldur líka komandi kynslóða og allt þetta er undir í þessum umhverfis- og orkumálum. Það er það sem gerir þau svo áhugaverð og spennandi. En hér held ég að okkur hafi tekist vel og ég bara lít spenntur og bjartsýnn til næstu verkefna á þessu sviði.