sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi. Helstu atriðin eru að með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um sorgarleyfi með það að markmiði að styrkja frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Lagt er til að þeir sem teljast foreldrar samkvæmt lögunum og missa maka sinn eigi rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði. Auk þess er lagt til að foreldri sem hefur verið í samfelldu starfi í skilningi laganna skuli eiga sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði, í stað þriggja, frá andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu. Þá er lagt til að mælt verði fyrir um sjálfstæðan rétt foreldris til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði í stað tveggja frá þeim degi sem fósturlát á sér stað eftir 18 vikna meðgöngu. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu endurspegla þau sjónarmið sem fram hafa komið á síðustu árum um aukin réttindi foreldra sem byggja rétt sinn á lögunum. Að mati meiri hlutans eru stigin jákvæð skref með frumvarpinu og með samþykkt þess verði stuðlað að miklum réttarbótum fyrir foreldra sem missa maka sinn frá börnum.
Tilhögun sorgarleyfis og önnur úrræði. Fyrir nefndinni var fjallað um tilhögun sorgarleyfis og samspil þeirra réttinda sem lögin veita við önnur úrræði sem í boði eru fyrir þá sem byggja rétt sinn á lögunum. Samkvæmt 10. gr. laga um sorgarleyfi á foreldri rétt á því að nýta rétt sinn í einu lagi en það er þó heimilt að semja við vinnuveitendur um aðra tilhögun, þ.e. skipta því niður í fleiri tímabil eða nýta það samhliða lægra starfshlutfalli. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um sorgarleyfi er ákvæðinu ætlað að tryggja foreldri viðeigandi sveigjanleika til að nýta rétt sinn til sorgarleyfis, enda um að ræða heimild en ekki skyldu til að vera frá vinnu. Í sumum tilvikum kann foreldri að kjósa að halda tengingu við vinnustaðinn, í það minnsta að hluta ef starfið býður upp á slíka möguleika. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að þeir sem verða fyrir áfalli og byggja rétt sinn á lögum hafi sveigjanleika til þess að minnka við sig starfshlutfall og haga því eins og þeir kjósi innan ramma laganna. Það er mikilvægt að einstaklingar sem verða fyrir missi haldi tengingu við vinnustað sinn eins og þeir treysta sér til. Þá kunna þeir einstaklingar að nýta sér önnur stuðningsúrræði samhliða lækkun starfshlutfalls og nauðsynlegt er að þeir hafi svigrúm til þess.
Ósamrýmanleg réttindi. Með 11. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 32. gr. laganna þar sem tiltekið er hvaða réttindi teljist til ósamrýmanlegra réttinda á sama tímabili og foreldri nýtur réttar síns til greiðslna í sorgarleyfi. Lagt er til að í ákvæðinu verði skýrt kveðið á um að foreldrar geti einungis fengið greiðslur í sorgarleyfi eða sorgarstyrk vegna missis eins barns eða maka á hverju tímabili. Meiri hlutinn áréttar að um væri að ræða sjálfstæðan rétt foreldris. Hvort foreldrið hefur áður orðið fyrir missi hefur ekki áhrif á rétt viðkomandi til sorgarleyfis verði foreldri endurtekið fyrir slíku áfalli, en með 11. gr. frumvarpsins er áréttað að greiðslur í sorgarleyfi tvöfaldist ekki við það.
Fjárhagsáhrif og framkvæmd laga um sorgarleyfi. Nefndin óskaði við umfjöllun málsins eftir upplýsingum frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti er varða fjárhagsáhrif frumvarpsins og framkvæmd laga um sorgarleyfi. Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar koma fram tölulegar upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa fengið greiðslur á grundvelli laga um sorgarleyfi. Þar kemur fram að árið 2023 hafi 71 fengið greiðslur á grundvelli laganna, 80 á árinu 2024 og 33 það sem af er þessu ári. Um bráðabirgðatölur er að ræða þar sem réttur til greiðslna fellur niður 24 mánuðum eftir að til hans var stofnað. Því kann fjöldi þeirra sem fá greiðslur að aukast umfram það sem kemur fram í minnisblaðinu.
Breytingar. Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu. Í ljósi þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu er lagt til að sérstaklega verði tekið fram í markmiðsákvæði laganna að lögunum sé ætlað að styðja við eftirlifandi börn, auk systkina, enda er með frumvarpinu lagt til að foreldri sem missir maka sinn frá börnum öðlist rétt samkvæmt ákvæðum laganna. Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki skýringar eða umfjöllunar.
Niðurlagið er: Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hlutans rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ingibjörg Isaksen, Jón Gnarr, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Ragna Sigurðardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir.