156. löggjafarþing — 52. fundur,  3. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að vinstri stjórnin hækki skatta en að koma opinberlega fram og segjast ekki ætla að hækka skatta en gera það samt og reyna svo að fela það er stórundarlegt. Við höfum margoft rætt þann feluleik að kalla skatt eitthvað annað eins og leiðréttingu en ef það væri nú bara allt. Nú er frumvarp um kílómetragjald komið úr nefnd. Það er orðið nokkuð þekkt að þar er landsbyggðarskatturinn fyrirferðarmikill. En það sem hefur farið minna fyrir í umræðunni er að þeir sem eiga að skila ríkissjóði mestu tekjunum í gegnum þetta frumvarp eru þeir sem eru á minnstu og eyðslugrennstu bílunum. Augljóslega er það ekki gert til að þjóna þeim tilgangi að fólk eyði minna af jarðefnaeldsneyti. Nei, það er gert í nafni þess að þeir borgi sem nota vegina, eitthvað sem ég gæti oft tekið undir, að þeir borgi sem nota þjónustu. En þegar við erum með skattaglaða vinstri stjórn þá hef ég ekki mikla trú á að þetta sé almenn breyting á skattkerfinu. Nei, þetta er hrein viðbót í skattheimtu. Og til að toppa ruglið mun sennilega um helmingur af auknum tekjum fara í umsýslukostnað og stærra bákn. Hv. þm. Sigríður Ásthildur Andersen fór vel yfir í Viðskiptablaðinu skattana sem á að leggja á sambúðarfólk. Það á að hækka skatt á hjón þegar annar aðilinn er með lægri tekjur en hinn. En það á að halda inni öllum ábyrgðum tekjulægri aðilans gagnvart mögulegri skattskuld. En ríkisstjórnin er hvergi hætt. Þau ætla að hækka lánskostnað þeirra aðila sem eiga lítið eigið fé í íbúðum. Og hverjir eru það? Jú, yfirleitt fyrstu kaupendur. En kannski er tilgangurinn að auka fjölda þeirra sem þurfa á félagslegu húsnæði að halda. Í þessu sama frumvarpi á að hækka eiginfjárkröfur á verktaka svo helst bara fagfjárfestar geti byggt og einnig á að flækja lánshæfismatið þannig að það á ekki að miða við nýjasta verðið heldur meðaltal nokkurra ára með tilheyrandi nauðsyn einstaklinga til að standa í reglulegri endurfjármögnun. Ég bið þessa vinstri stjórn að finna alla vega jafnaðarmanninn í sér svo skattahækkanir séu ekki alveg út úr öllu korti og bitni ekki verst á þeim sem minnst mega við því.