156. löggjafarþing — 52. fundur,  3. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Í hv. allsherjar- og menntamálanefnd starfar núna sérstök undirnefnd sem löng hefð er fyrir, þó ekki lögskipuð, um afgreiðslu á umsóknum sem berast Alþingi um ríkisborgararétt. Alla jafna berast mörg hundruð umsóknir um ríkisborgararétt hingað til Alþingis og þriggja manna undirnefnd hv. allsherjar- og menntamálanefndar fjallar um þessar umsóknir. Það vakti þess vegna undrun mína að lesa í fjölmiðlum bæði í gær og í dag ummæli hv. formanns allsherjar- og menntamálanefndar, Víðis Reynissonar, um málsmeðferðina og líklega afgreiðslu þessara mála í nefndri undirnefnd. Fullyrti hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar þannig að tiltekinn einstaklingur fengi líklega ríkisborgararétt. Það kemur líka fram í fréttinni að hv. formaður nefndarinnar hafi haft samband við Útlendingastofnun og komið þessum skilaboðum á framfæri, að það væru yfirgnæfandi líkur á því að tiltekinn einstaklingur fengi hér ríkisborgararétt. Hafi hann haft samband við Útlendingastofnun vegna þess að það lá fyrir að það væri verið að brottvísa viðkomandi einstaklingi og hv. formaður taldi að þetta gæti haft áhrif á brottvísunina, sem og hefur gerst.

Virðulegur forseti. Ég geri verulega athugasemd við þessa framgöngu formanns hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Ég spyr auðvitað hvaðan honum hafi komið umboð til þess að tjá sig með þessum hætti og hafa afskipti af lögmætum kæruferlum og lögmætri stjórnsýslu, ákveðnum stjórnsýsluferlum með þessum hætti. Að mínu mati, virðulegur forseti, hefur hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Víðir Reynisson, (Forseti hringir.) brotið trúnað við hv. allsherjar- og menntamálanefnd, ekki bara undirnefnd þá sem ég nefndi hér í upphafi heldur alla nefndina. Ég tel ekki fara vel á því að svona framganga verði látin átölulaus hér á þinginu.