156. löggjafarþing — 52. fundur,  3. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Hjá okkur í atvinnuveganefnd hefur frumvarp um veiðigjöld verið til umræðu. Það er ágætt að sjá hversu mörg sveitarfélög hafa sent inn umsögn þar sem þau lýsa sínum áhyggjum af þeim áhrifum sem þetta frumvarp getur haft. Mig langar hér, virðulegur forseti, með þínu leyfi, að grípa niður í nokkra punkta í umsögnum þessara sveitarfélaga sem sent hafa inn umsögn og þá byrja ég bara á lestrinum hvað það varðar.

Suðurnesjabær segir að núverandi ríkisstjórn sé ekki að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga eins og lofað hafi verið.

Grindavíkurbær: Aðgerðirnar „veiki forsendur atvinnulífs í bænum …“

Vestmannaeyjar koma þarna á eftir og segja óásættanlegt að ráðherra og ríkisstjórn leggi fram frumvarp um tvöföldun veiðigjalda án þess að hafa betri upplýsingar.

Sveitarfélagið Hornafjörður: Frumvarpið fullnægi ekki „kröfum um lög og góðar stjórnsýsluvenjur …“

Fjarðabyggð: Frumvarpið geti „grafið undan rekstrarhæfni útgerða í brothættum byggðum …“

Langanesbyggð sér fram á að missa bróðurpartinn af útsvarstekjum sínum.

Norðurþing: Þar skortir að þeirra mati mat á fjárhagslegum áhrifum, m.a. vegna þess að vinnslan fer oft fram í öðrum sveitarfélögum en þar sem útgerðin á t.d. lögheimili.

Hjá Grýtubakkahreppi kemur fram að of seint sé að fara í ákveðna greiningarvinnu þegar neikvæð áhrif hafi þegar komið fram.

Virðulegi forseti. Ég neita að trúa því að svo sé komið fyrir ríkisstjórnarflokkunum að ekki eigi að hlusta á þessar áhyggjur fyrrgreindra sveitarfélaga.