Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Núna eru liðnir rúmlega sex mánuðir í lífi þessarar ríkisstjórnar og ég segi: Hver hefði trúað því að Samfylkingin og Viðreisn myndu ganga fram eins og raun ber vitni? Nú er ég ekki hér með tæmandi upptalningu en á þessum stutta tíma hefur þeim tekist að koma opinberum fjármálum, verklagi við opinber fjármál tíu ár aftur í tímann. Fyrsti fjármálaráðherrann sem flutti fjármálastefnu og fjármálaáætlun var Benedikt Jóhannesson, fyrsti formaður Viðreisnar. Við sjáum hér frumvarp sem gjörbreytir stöðu lífeyrissjóða og gerir það að verkum að þeir sem hafa lægstu lífeyrisgreiðslurnar, - tekjurnar, munu fá minna. Þetta flókna mál var flutt hér í gær og það kemur fram í frumvarpinu að það var svo mikið að gera, þetta var svo flókið að þau höfðu ekki tíma til að senda það í samráðsgátt — ekki tíma til að senda það í samráðsgátt. Svo eigum við núna í dag, virðulegi forseti, að fara marga áratugi aftur í tímann því að ríkisstjórnin ætlar í fullri alvöru að koma fram með frumvarp þar sem menn hætta að taka mark á ráðgjöf vísindamanna um sjávarútvegsauðlindina okkar.
Virðulegi forseti. Við erum farin að ræða hér hluti sem ég hélt að væru bara farnir út úr íslenskum stjórnmálum, góðu heilli, en svo er ekki. Hér koma þessir flokkar — og það er áhugavert að skoða hvað þeir sögðu fyrir kosningar — og þeir eru komnir með vinnubrögð sem hafa ekki sést í áratugi og enginn hefur saknað. (Forseti hringir.) Þetta er alvara málsins, virðulegi forseti. Þetta er fornaldarríkisstjórn.