Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er gott að einhverjir verði hér á bjartsýnisnótunum í dag því að nú á dögunum úthlutaði stjórn fiskeldissjóðs rúmlega 465 millj. kr. til 15 verkefna í sjö fiskeldissveitarfélögum. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Verkefni sem fengu styrk í ár eru á sviði brunavarna, skóla og íþróttamannvirkja, vatns- og fráveituverkefna, svo fátt eitt sé nefnt. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar er kveðið á um að innheimta eigi réttlát auðlindagjöld sem renni að hluta til nærsamfélagsins. Úthlutun fiskeldissjóðs er fyrirtaksdæmi um slíkt.
En það þarf að gera meira og ríkisstjórnin hyggur á frekari aðgerðir í þessum anda. Í því tilliti má nefna áform innviðaráðherra um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga sem nú eru til umsagnar í samráðsgátt. Þau fjalla um skattlagningu orkumannvirkja og að afnema undanþágur rafveitna frá fasteignamati. Auknar skatttekjur vegna orkumannvirkja munu styrkja fjárhagslega stöðu sveitarfélaga og gera þeim kleift að veita íbúum sínum öfluga þjónustu og byggja upp innviði til framtíðar. Þar er markmiðið að ávinningur vegna auðlindanýtingar, þar með talið orkuframleiðslu, geti skilað sér í ríkari mæli til nærsamfélagsins. Í undirbúningi er jafnframt frumvarp um auðlindagjöld í ferðaþjónustu og það er mikilvægt að þær tekjur skili sér til uppbyggingar ferðamannastaða vítt og breitt um landið.
En það er ekki hægt að tala um auðlindagjöld og nærsamfélagið án þess að nefna hækkun veiðigjalds sem nú er til umræðu í þinginu. Skýrar fyrirætlanir eru um að þær tekjur sem koma til vegna hækkunar veiðigjalds skili sér í bættum innviðum. Nú þegar hefur tilkynnt um 3 milljarða aukna fjárveitingu í viðhald vega strax á þessu ári og í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir 7 milljónum til viðbótar í vegbætur á árinu 2026. Og svo bætum við í. Það skiptir máli hvaða sögu við ætlum að segja. Nærsamfélagið á að fá að njóta rentu af sínum auðlindum. Þannig byggjum við upp sterk samfélög með öfluga og samkeppnishæfa innviði um land allt.