156. löggjafarþing — 52. fundur,  3. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið og okkur ætti öllum að vera ljóst þá ríkir neyðarástand í málefnum barna á Íslandi, sérstaklega barna í miklum, fjölþættum og flóknum vanda, t.d. fíknivanda. Okkur skortir úrræði. Við bjóðum ekki drengjum nokkra einustu langtímameðferð og hefur ekki verið langtímameðferð fyrir drengi í rúmt ár. Það er algerlega óásættanlegt. Við erum með eitt langtímaúrræði fyrir stúlkur í Hörgársveit og biðlisti er þar inn. Okkur vantar fleiri rými fyrir stúlkur. Vandinn er mjög alvarlegur. Stuðlar hafa verið nokkuð óstarfhæfir um langan tíma frá því að þar varð bruni þar sem meira að segja barn lést. Þetta er algjörlega óásættanlegt. Ég hitti foreldra um daginn. Ég hitti móður 14 ára drengs sem er óvinnufær út af honum vegna þess að hún þarf meira og minna að sjá um hann sjálf. Þessi 14 ára drengur er tvisvar sinnum búinn að lenda í hjartastoppi, tvisvar sinnum búinn að deyja. Þetta er algerlega óásættanlegt ástand og þessu verður að linna. Við erum að vista börn með þroskaraskanir og börn sem eru í neyslu eða að reyna að koma sér úr neyslu með börnum sem eru að afplána dóma, refsidóma. Þetta er algerlega óásættanlegt. Nú hefur mennta- og barnamálaráðherra sent bréf á þingflokka og óskað eftir tilnefningu frá flokkunum í þingmannanefnd um aðgerðir í málefnum barna með fjölþættar þarfir og fjölþættan vanda og vil ég hvetja þingflokka til að skipa (Forseti hringir.) fulltrúa í þessa ágætu nefnd.