Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar hér í störfum þingsins að tala um það hvernig störf þingsins og hæstv. ríkisstjórnar eru búin að skapa gríðarlega óvissu í einu stærsta lögregluembætti landsins, lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þetta er embætti sem hefur tekist á við gríðarlegar áskoranir og breytingar undanfarinn áratug ef svo má segja. Það er ekki bara heimsfaraldurinn sem allt almannavarnakerfi þurfti að takast á við, svo eru jarðhræringarnar. Á sama tíma hefur verið mikil breyting þar í samfélaginu vegna aukinnar búsetu innflytjenda og hælisleitenda en um helmingur búsetuúrræða Vinnumálastofnunar var þar, í tiltölulega litlu samfélagi, sett á einn stað á sama tíma og álagið á landamærunum jókst gríðarlega en þetta embætti er með um 15–20 fanga í gæsluvarðhaldi á hverjum tíma. Þarna vinna 225 manns.
Nú er búið að segja yfirmanninum upp út af pólitískum áherslum og fyrirhuguðum breytingum á embættinu en það veit enginn af þessum 225 hver stefnan er. Það er ekkert frumvarp komið fram. Það eru engar fyrirætlanir aðrar en pólitísk áhersla og að það eigi að breyta verkefnunum. Það hefur hvorki verið talað við kóng né prest. Á sama tíma getur þessi starfsemi ekki eðlilega farið fram af því það er ekkert húsnæði. Húsnæðið er myglað og það er allt stopp í framkvæmdum og verið að skera niður í framkvæmdum varðandi húsnæði hjá þessari stofnun. Hvernig væri nú að hæstv. dómsmálaráðherra færi og talaði við þetta fólk sem er að vinna gríðarlega mikilvægt verkefni, gríðarlega stór verkefni og gríðarlega mikilvæg verkefni? Það eru mjög krefjandi og erfiðar aðstæður og svo er bara alger óvissa í boði stjórnenda. Svona er ekki hægt að koma fram við svona mikilvæga stofnun og mikilvægt starfsfólk sem telur 225 manns.