156. löggjafarþing — 53. fundur, 4. júní 2025.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni um að hann verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Vilborg Kristín Oddsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti. Vilborg Kristín Oddsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.