156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Á laugardaginn hittust tveir bergmálshellar á Austurvelli. Báðir hópar hafa áhyggjur af landamærum Íslands, þó af ólíkum toga. Annar vill loka og hinn vill opna. Annar hefur áhyggjur af innstreymi útlendinga í íslenskt samfélag. Hinn hefur áhyggjur af skorti á mannúð og mannréttindum sama hóps. Íslenskir fánar blakta hjá öðrum hópnum. Hjá hinum eru fánar jaðarsettra hópa. Þessi samkoma Austurvelli er táknmynd tveggja turna sem eiga erfitt með að skilja málstað hvor annars og mætast sjaldan. Það er lýðræðislegur réttur okkar að tjá skoðanir, mótmæla, hafa hátt, hafa ástríðu fyrir samfélaginu og þróun þess. En við hljótum að staldra við og spyrja okkur: Af hverju erum við stödd hér? Ætlum við að halda svona áfram eða eigum við að finna aðrar leiðir til að eiga samtal um framtíð Íslands? Ný ríkisstjórn tók við keflinu í desember. Hún getur ekki borið pólitíska ábyrgð á stöðunni fyrir þann tíma. En við berum ábyrgð núna og við tökum það alvarlega.

Forseti. Það er hlutverk okkar stjórnmálamanna að hlusta og þrýstijafna umræðuna, ekki ýta undir tilfinningar eins og ótta og óöryggi. Það er á okkar ábyrgð, þingheims, að taka stöðuna alvarlega og leggja við hlustir. Við verðum að taka samtalið, hætta að jaðarsetja manneskjur og koma okkur upp úr skotgröfum. Hlúum að lýðræðinu, hlúum að samkenndinni og trúnni á samtalinu. Við þurfum ekki að bjarga landinu frá ímynduðum óvinum heldur frá sundrung, skautun og tortryggni. Bjargirnar felast ekki í því að loka heldur að tengja. Samfélag klofnar ekki af fjölbreytileika heldur af óttanum við hann. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)