156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Í dag er 4. júní og það markar þau tímamót að 36 ár eru liðin frá tveimur merkum atburðum í mannkynssögunni sem áttu sér stað í sama sögulega samhengi en voru þó æðiólíkir. Það var fyrir 36 árum sem sex vikna löngum friðsælum mótmælum stúdenta lauk með beitingu valds á Torgi hins himneska friðar í Beijing og það var líka fyrir 36 árum síðan sem fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í Mið- og Austur-Evrópu voru haldnar í Póllandi og þeim lauk með sigri lýðræðisaflanna þar. Markaði sá sigur upphaf að endalokum kommúnismans í Mið- og Austur-Evrópu. Það verður að segjast að báðum þessum svæðum, Kína og Mið- og Austur-Evrópu, hefur í efnahagslegu tilliti vegnað vel á undanförnum árum, sem sýnir kannski mátt markaðshagkerfisins. En þegar kemur að hlutum eins og mannréttindum, lýðræði og réttarríki þá hafa þessi tvö svæði valið ansi ólíka leið eftir ansi ólíkri hugmyndafræði. Á öðrum stað er frelsi, mannréttindi og lýðræði í hávegum höfð en hugmyndir manna um þessi hugtök eru aðrar á hinum staðnum. Ég held að það sé ekki tilviljun, á sama hátt og það er ekki tilviljun að þau ríki sem ákváðu að ganga inn í NATO eru í dag frjáls undan oki voldugra nágranna, að þau ríki sem ákváðu að stíga skref inn í Evrópusambandið eru þau ríki Evrópu sem búa í dag við frelsi, lýðræði, mannréttindi og réttarríki. Það er þetta sambland af efnahagslegri velmegun, mannréttindum, lýðræði og réttarríki sem gerir að verkum að við sem köllum okkur Evrópusinna hrífumst af þeirri hugmyndafræði.

Forseti. Ég hef lokið máli mínu.