Störf þingsins.
Frú forseti. Ég er á þeirri skoðun að íslenskan ríkisborgararétt eigi að veita sparlega eftir vandaða málsmeðferð og að Alþingi eigi einungis að veita ríkisborgararétt í undantekningartilvikum. Ég tel að atburðir síðustu daga hafi sýnt okkur að nauðsynlegt er að fara í heildarendurskoðun á lögum um ríkisborgararétt og einnig lögum um útlendinga, þótt ekki sé nema til að koma í veg fyrir pólitísk inngrip sem við erum að verða vitni að hér á Alþingi. Það vita allir hvað ég er að tala um þannig að ég ætla ekki að vitna beint til málsins sem hér hefur öllu snúið á hvolf, bæði innan þings og utan.
Mér þykir eitthvað skakkt við það að einstaklingar sem uppfylla ekki skilyrði til hælis og fá synjun um vernd frá tveimur stjórnsýslustigum geti leitað ásjár Alþingis og fengið vernd þannig með nánast loforði um veitingu ríkisborgararéttar. Fá ef nokkur fordæmi eru fyrir slíkum vinnubrögðum sem eru ekki til þess fallin að auka tiltrú almennings á kerfi útlendingamála á Íslandi. Hvaða fordæmi er eiginlega verið að gefa? Hvað með þá 300 einstaklinga sem hafa beðið eftir að fá sínar umsóknir teknar fyrir af undirnefndinni? Hvað með þá 18 einstaklinga þar sem brottvísun er ekki frestað? Er jafnræðis gætt? Nei, hér er ekkert annað á ferðinni en pólitískt inngrip. Mér leikur hugur á að vita hvort ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, sem kennir sig jú við jafnaðarmennsku, standi á bak við þetta inngrip sem um ræðir. Mér finnst ekki góður bragur á þessu. (Gripið fram í: Takk.)