156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það hefur verið virkilega vont að fylgjast með framgöngu meiri hlutans í Reykjavík gagnvart íbúum úthverfa. Hvert skipulagsklúðrið á fætur öðru hefur vakið upp hörð viðbrögð en vinstri meiri hlutinn hefur skellt við skollaeyrum. Íbúar Grafarvogs eru nýjasta fórnarlamb ofstækisfullra þéttingartrúarbragða Samfylkingar og fylgifiska þeirra. Fulltrúar meiri hlutans hafa vogað sér að mæta í hverfið og segja íbúa þurfa að standa sína plikt þar sem „húsnæðiskrísa“ standi yfir og jafnvel ýjað að samábyrgð þeirra á hörmulegum dauðsföllum fólks í vanbúnu húsnæði í borginni. Eins og Samfylkingin beri ekki höfuðábyrgð á því að ekki hefur verið byggt nóg í Reykjavík, sem hefur stóraukið verðbólguþrýsting og keyrt upp vexti í landinu.

Það er síðan ótrúlegt fyrir íbúa Grafarvogs, eins og mig sjálfa, að hlusta á kjörna fulltrúa útskýra fyrir okkur að það sé nóg pláss fyrir fleiri íbúa í hverfinu. Við, sem höfum árum saman keyrt börnin okkar á leikskóla utan hverfis og við, sem sitjum á hverjum degi pikkföst í umferðinni, ekki bara að Grafarvogi heldur inni í Grafarvogi. Grafarvogsbúar eru blessunarlega samheldnir, traustir og háværir og það er ástæða til að þakka íbúum sem verja dýrmætum tíma í að svara ósvífni þeirra sem stýra borginni. Ég hef reynt að leggja mitt af mörkum eftir að ég hætti sem varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Hér hef ég gert mitt besta til að vera þingmaður Reykjavíkur, m.a. míns fólks í Grafarvogi, og tekið upp m.a. skipulags- og umferðarmál og dagvistunarmálin. Nú síðast lagði ég inn fyrirspurn í þinginu um umferðarteppurnar og umferðaröryggismál í Grafarvogi. Okkur íbúum er ljóst að Samfylking og fylgitungl ætla ekki að gæta hagsmuna úthverfanna í Reykjavík. Ég held a.m.k. áfram að hamast í þessu hér, íbúar geta treyst á það.