Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mamma, komdu til mín, komdu aftur til mín, kallaði grátandi lítil stúlka sem stóð yfir látinni móður sinni sem hafði verið drepin við að reyna að sækja mat fyrir sig og börnin sín. Palestínufólk hefur nú um tvo kosti að velja: Að deyja úr hungri eða verða drepið við að reyna að sækja sér mat. Ítrekað hafa Ísraelsmenn skotið á fólk sem í örvæntingu er að reyna að komast yfir mat og það er erfitt að ná utan um þá illsku sem þarna ræður ríkjum. Einhverra hluta vegna fá Ísraelsmenn óáreittir að fremja slík ódæðisverk og hafa nú drepið vel á sjötta tug þúsunda Palestínumanna frá innrás Hamas inn í Ísraels 7. október 2023. Allt tal um vopnahlé hefur reynst tálsýn ein og rufu Ísraelsmenn m.a. vopnahlé 18. mars sl. og gerðu loftárásir á Gaza þar sem um 600 manns voru drepin. Ísraelsmenn reyndu einnig að fela það að það var ráðist á bílalest óvopnaðra hjálparstarfsmanna 23. mars sl. þar sem 15 manns voru drepnir.
Virðulegi forseti. Ég get ekki skilið hvers vegna Ísraelsmenn komast upp með að eyða palestínsku þjóðinni með þessum hætti. Viðbrögð við innrás Rússa í Úkraínu voru að mínu mati hárrétt, þar sem Rússar voru útilokaðir frá öllum samskiptum við hið vestræna samfélagi. Viðbrögð við stöðunni í Palestínu eru allt önnur. Nokkur ríki, þar á meðal Ísland, hafa veikum rómi talað fyrir því að eitthvað þurfi að gera en svo gerist ekki neitt og við dönsum áfram í Eurovision-partíum með Ísrael. Skiptir það virkilega máli að vera hvítur og kristinn til þess að heimurinn bregðist við? Og á meðan ekkert gerist halda grátandi lítil börn í Palestínu áfram að kalla á mömmu sína.