156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla hér að nýta tækifærið og leiðrétta sjálfan mig. Ég met það sem svo að þess gerist sem betur fer ekki oft þörf en ég ætla að gera það engu að síður. Ég skrifaði pistil sem birtist í Morgunblaðinu í morgun undir yfirskriftinni: Strandveiðar í ólgusjó. Þar sagði ég, með leyfi forseta:

„Stjórnin hefur lagt fram 78 lagafrumvörp, sum bíða enn 1. umræðu þegar þetta er skrifað, jafn ótrúlegt og það nú er. Af þessum 78 hafa 14 orðið að lögum. 18%! Þegar sex þingfundadagar eru eftir af starfsáætlun þingsins. Það er nú öll verkstjórnin.“

Ég hefði átt að koma þarna inn á það sem ég hafði ekki áttað mig á í raun en hef glöggvað mig á síðan. Af þessum 14 frumvörpum sem eru orðin að lögum á þessu þingi, þegar örfáir dagar eru eftir af starfsáætlun, eru í raun ekki nema fimm frá hæstv. ríkisstjórn. Það eru fjögur EES-mál og fimm endurnýtt gömul mál frá fyrri stjórninni. Kannski hefði verið allt eins gott að hún skakklappaðist áfram miðað við hvernig afköstin eru hjá verkstjórninni, sem nú kallar sig svo. Þessu er hér með komið á framfæri. Það er raunverulega þannig að þegar sex þingfundadagar eru eftir af starfsáætlun þessa þings hefur ríkisstjórnin komið í gegnum þingið fimm þingmálum sem eru frá henni sjálfri komin og þá er ég að telja með mjög sanngjörnum hætti. Meira að segja tel ég með staðfestingu ríkisreiknings fyrir árið 2023, núverandi ríkisstjórn hafði enga aðkomu að þeim störfum sem mál þessarar stjórnar. Svæðisbundin flutningsjöfnun er hérna hjá mér, tekjustofnar sveitarfélaga vegna fasteignaskatta í Grindavíkurbæ og síðan heiti stofnunar, þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Þetta er nú allt og sumt sem verkstjórnin hefur komið hér í gegnum (Forseti hringir.) þingið þannig að ég bara bið PR-menn, almannatengslamenn ríkisstjórnarinnar, að koma upp með eitthvert skemmtilegra nafn sem er betur viðeigandi heldur en að kalla þessa ríkisstjórn verkstjórnina.