156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Þann 13. maí síðastliðinn barst okkur þingmönnum í Norðvesturkjördæmi og einnig ráðherra félags- og húsnæðismála tölvubréf frá sveitarstjórn Borgarbyggðar þar sem vakin var athygli á þeirri alvarlegu stöðu sem upp væri komin í Borgarbyggð vegna vistunar flóttamanna og krafist tafarlausra viðbragða. Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir vakti einnig athygli þingsins á málinu þann sama dag.

Til upprifjunar, virðulegi forseti, eru um þessar mundir 180 flóttamenn búsettir í sveitarfélaginu. Flestir þeirra eru frá Úkraínu og flestir búsettir á Bifröst. Þar af reiða 105 einstaklingar sig á fjárhagsaðstoð frá Borgarbyggð, aðstoð sem sveitarsjóður ber nú einn þar sem endurgreiðslur ríkisins skerðast hratt. Kostnaður sveitarfélagsins við þessa fjárhagsaðstoð er nú um 27 millj. kr. á mánuði og hefur þegar numið yfir 30 milljónum á fyrsta ársfjórðungi. Ef ekkert er að gert stefnir í að heildarkostnaður fari yfir 200 millj. kr. á árinu 2025 og er vaxandi. Þetta veldur augljóslega verulegum áskorunum í rekstri sveitarfélagsins.

Þessi þróun er ekki tilviljun. Hún er afleiðing þess að skammtímabúseta flóttamanna hefur breyst í langtímaleigu án aðkomu sveitarfélagsins að ákvörðunum. Borgarbyggð hefur ítrekað varað við þessari þróun og boðið liðsinni sitt en því miður án árangurs. Veruleikinn er sá að stór hluti þessa hóps mun ekki geta tekið virkan þátt á íslenskum vinnumarkaði og því blasir við langvarandi framfærsla Borgarbyggðar og Borgarbyggð getur ekki staðið undir því ein.

Virðulegi forseti. Enn hefur félags- og húsnæðismálaráðherra ekki sett sig í samband við Borgarbyggð eða yfirleitt sýnt nokkurt lífsmark í þessu máli. Því leyfi ég mér að leita liðsinnis þingmanna Flokks fólksins við að vekja athygli ráðherrans á þessu máli og kalla fram viðbrögð.