Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Velferðarnefnd lýkur brátt meðferð sinni um frumvarp um breytingu á lögum um almannatryggingar sem kemur þá til afgreiðslu hér í þingsal. Með frumvarpinu er verið að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar um að rétta við hlut þeirra sem lakast standa í samfélaginu, sérstaklega þeirra sem fá litlar eða engar greiðslur úr lífeyrissjóðum. Í minnisblaði embættismanna í fjármálaráðuneytinu til nefndarinnar eru settir ýmsir fyrirvarar við það að tengja hækkanir á bótum almannatrygginga við launavísitölu. Þessar athugasemdir breyta í engu þeirri staðreynd að á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil kjaragliðnun milli lægstu launa og upphæða elli- og örorkulífeyris þannig að þar munar rúmlega 100.000 kr. Þessa kjaragliðnun ætlar ríkisstjórnin sér að stöðva. Með því að miða hækkanir lífeyris við hækkanir á launavísitölu eykst kaupmáttur skjólstæðinga almannatrygginga jafn mikið og þeirra sem eru á vinnumarkaði. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að bundið verði í lög að aldursviðbót af lífeyri öryrkja haldist ævilangt og örorku- og ellilífeyrir hækki á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag. Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gripið verði til aðgerða til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Í athugasemdum embættismanna fjármálaráðuneytisins er látið í veðri vaka að tekjur og gjöld ríkissjóðs taki ekki vísitölubreytingum. Þær hafa engu að síður mikil áhrif á ríkissjóð. Embættismenn fjármálaráðuneytisins telja að kostnaður ríkisins af lagabreytingunni verði 2–3 milljarðar á þessu ári miðað við núverandi aðstæður. Tekjuaukning ríkissjóðs af sömu hækkun launavísitölu vegna aukinna skatttekna er sennilega margfalt meiri en sem nemur þessum nokkrum milljörðum. Ríkið missir því mjög lítinn hluta af ávinningi sínum af launahækkunum með hækkun lífeyris samkvæmt launavísitölu.
Það er undarlegt hlutskipti þeirra sem leggjast gegn því að fátækasta fólkið í landinu geti lifað af greiðslum almannatrygginga. (Forseti hringir.) Ég treysti því að frumvarpið fái afgreiðslu hér í þinginu. Þannig er stigið mikilvægt skref til að eyða þeirri kjaragliðnun sem átt hefur sér stað milli launa og greiðslna almannatrygginga.