156. löggjafarþing — 53. fundur,  4. júní 2025.

Störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. „Við erum álfar. Það sér okkur enginn. Við erum álfar. Kerfið kemur aldrei auga á okkur.“ Þessi orð komu úr munni ungs fatlaðs manns á ráðstefnu nýverið um húsnæðismál fatlaðs fólks. Hann lýsti sér sem álfi. Hann vildi meina að fatlað fólk á Íslandi væri álfar vegna þess að við, þingheimur, stjórnkerfið, sjáum ekki þetta fólk.

Ég hef fylgst náið með þessum málaflokki um áratugaskeið og það blasa alltaf sömu fréttir við: Verður skóli í haust? Kannski. Kannski ekki. Blessunarlega verður engu ungu fólki vísað frá starfsbrautum skóla í haust, hæstv. ráðherra málaflokksins hefur séð til þess. Það er fagnaðarefni. Verður diplómanám í Háskóla Íslands í haust? Sennilega ekki. Háskólinn hefur ekki efni á því.

Þessar fréttir blasa við okkur áratugum saman. Við höfum ekki efni á sumu fólki í þessu landi, við höfum ekki efni á því. Og hvernig haldið þið, ágæti þingheimur, að það sé fyrir þennan stóra hóp í okkar samfélagi að heyra það allan uppvöxt sinn, kannski öll fullorðinsárin, að þjóðfélagið hafi ekki efni á þessu fólki? Hvernig haldið þið, ágæti þingheimur, að þessi skilaboð síist inn í huga þessa fólks, að við höfum ekki efni á því? Við þurfum að laga þetta. Við getum það. Þetta er ekki stóri peningurinn í samfélaginu. En hvað heyrist hérna úr þingsalnum á meðan fjölskyldur, unga fólkið er að hugsa um þessi skilaboð? Hvað heyrist hérna? Jú, við skulum áfram hjálpa þeim best settu. Við skulum áfram gefa afslátt af gjöldum ríkustu fyrirtækja landsins. (Forseti hringir.) Við skulum áfram gera það. Höldum með þeim á kostnað hinna sem eru að bíða eftir því hvort þeir geti fengið sjálfsagða þjónustu í þessu landi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)