Störf þingsins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni fyrir góða ræðu. En mig langaði að benda á að ég var með ræðu í gær sem fjallaði einmitt um það hvernig þessi ríkisstjórn forgangsraðar málum, hverjir eru að fá aukna skattheimtu og hverjir ekki. Það eru yfirleitt þeir sem minnst mega sín sem lenda í aukinni skattheimtu, það er ágætt að bæta því inn í þessa umræðu. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom hérna upp áðan og ræddi m.a. hvernig dagskrá annarra þjóðþinga er háttað. Hv. þingmaður er í ríkisstjórn sem stýrir dagskrá Alþingis. Haldið ykkur fast, sagði hún, annars staðar er vitað hvenær þingfundi lýkur. Ég tek undir að mikið væri gott að vita hvenær þingfundi lýkur, við fáum kannski að vita hvenær þingfundi lýkur í kvöld. Hún talar kannski við samflokksmenn sína og upplýsir okkur hin. (Gripið fram í.) Nei, þið stýrið dagskrá þingsins. Hvað sagði hv. þm. Bergþór Ólason áðan, hvað eruð þið búin með? Sex mál? Þetta er engin frammistaða. Þetta er engin verkstjórn. Þetta er einhvers konar óstjórn. Hún talar einnig um að fara að hitta kjósendur. Mikið væri gott að geta gert það. En hér koma mál seint og illa unnin og stjórnarþingmenn sjálfir virðast ekki treysta sér til að mæta og tala fyrir málunum. Það mætir enginn að tala fyrir málum. Þau virðast ekki sammála um neitt eða þá að það er búið að slökkva á öllum stjórnarþingmönnum. Svo mætir hæstv. forsætisráðherra í viðtali og segir: Vonandi vaknar þingið. Já, ég get upplýst hæstv. forsætisráðherra um það að þingið er vakandi og það fram á kvöld og örugglega fram á miðjar nætur næstu daga. Hæstv. forsætisráðherra birtir af sér myndir að hitta kjósendur eins og hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur langar að gera. Heldur hún að okkur langi ekki öll að gera það? Við erum hérna að standa vaktina af því að þessi ríkisstjórn gerir það ekki.