framkvæmd tillagna OECD um úrbætur á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.
Forseti. Ég biðst afsökunar á því hversu illa heyrðist í mér þegar ég óskaði eftir því að fá að koma upp varðandi fundarstjórn. Mig langar til að biðja hæstv. forseta um að aðstoða okkur sem sitjum í hv. atvinnuveganefnd. Þar er býsna þétt dagskrá núna sem hverfist í augnablikinu mikið um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Þar eru sömuleiðis á leiðinni inn, að lokinni umræðu hér, mál er varða strandveiðar, grásleppu og fleiri risastór mál, búvörulög og annað, og það sem við höfum kveinkað okkur yfir núna um allnokkra hríð er fyrirsjáanleiki í nefndinni. Í þingmannagátt birtist okkur excel-skjal þar sem næsti fundur birtist þar sem eingöngu stendur „gestir“, ekki hverjir þeir eru, þannig að við erum að sjá gestakomur á síðustu stundu. Í ljósi þess hversu skammt er eftir af þessu þingi og hversu mikil verkefni og flókin eru fram undan í störfum þessarar tilteknu nefndar þá vil ég biðla til hæstv. forseta að hlutast til um það að stjórn nefndarinnar fari að funda, nái utan um áform um (Forseti hringir.) hvernig skuli nálgast næstu fundi því að okkur almennum óbreyttum þingmönnum í nefndinni er það fullkomlega óljóst nú um stundir.